Bæjarstjórn Akureyrar hefur falið bæjarstjóra að hefja undirbúning að nýrri stefnumörkun um orku- og gagnatengda atvinnustarfsemi í bænum.
Í stefnunni verður meðal annars greint hvaða tækifæri felast í þjónustu við gagnaver og orkuiðnað á Norðurlandi, ásamt því að kortleggja afleidd tækifæri á sviði menntunar, nýsköpunar og tækniþróunar.
Vinnan við stefnumörkunina mun nýtast sem innlegg í tilvonandi aðalskipulagsvinnu sveitarfélagsins, en markmiðið er að byggja upp öflugt atvinnuvistkerfi þar sem orka og innviðir verða grunnur að aukinni verðmætasköpun og fjölbreyttari störfum á svæðinu.