„Ég held ég væri ekki á þessum stað í dag án hennar“

Ísabella Anna kom inn á fyrir Hörpu móður sína í sínum fyrsta deildarleik með meistaraflokki Völsung…
Ísabella Anna kom inn á fyrir Hörpu móður sína í sínum fyrsta deildarleik með meistaraflokki Völsungs í stórsigri á Vestra 5-0 í júní 2024. Mynd/Hafþór Hreiðarsson.

Ísabella Anna Kjartansdóttir á að baki viðburðaríkt fótboltasumar. Hún skoraði átta mörk fyrir Völsung í Lengjudeildinni, varð Íslandsmeistari í þriðja flokki og hefur nú verið á æfingum með U16-landsliðinu. Hún stefnir á atvinnumennsku og A-landsliðið en einn mikilvægasti stuðningsmaðurinn er nærri henni, bæði innan vallar og utan: mamma hennar, sem hefur meira að segja lagt upp fyrir hana mark.

 Frá því að koma inn á fyrir mömmu sína í fyrsta deildarleiknum með meistaraflokki hefur Ísabella Anna Kjartansdóttir látið sífellt meira að sér kveða á knattspyrnuvellinum. Á þessu tímabili lék hún alla átján deildarleiki Völsungs í Lengjudeild kvenna og skoraði átta mörk. Hún á einnig þrjá landsleiki með U15-landsliðinu að baki og var í hópi Margrétar Magnúsdóttur, landsliðsþjálfara U16 kvenna, sem kom saman til æfinga í Miðgarði dagana 27.–29. október.

 

Eitt marka hennar í sumar vakti sérstaka athygli. Það var jöfnunarmark gegn Keflavík á lokamínútum leiks, sem streymisveitan Livey valdi síðar mark tímabilsins í Lengjudeild kvenna. Ísabella hafði þá skorað bæði mörk Völsungs í 2–2 jafntefli eftir að liðið lenti tveimur mörkum undir.

Ísabella hefur metnað til að ná langt í fótboltanum en fyrst og fremst finnst henni gaman að spila. Hún gladdist því þegar boðið á landsliðsæfingarnar barst:

„Mamma sendi á mig að ég væri búin að fá boð á æfingarnar. Fyrstu viðbrögðin mín voru bara að ég var glöð, það er alltaf gaman að vera valin í landsliðsverkefni.“

Vill sýna sína réttu hlið

Ísabella þekkir þegar til þess að fara í landsliðsverkefni og segir reynsluna með U15-landsliðinu hafa verið dýrmæta.

„Það er alltaf heiður að fá að klæðast landsliðstreyjunni. Að fá að spila á móti sterkum fótboltaþjóðum er reynsla sem ég tók með mér.“

Nú vill hún nýta tækifærið á æfingunum og sýna hvað í henni býr.

„Mig langar að reyna að sýna mína réttu hlið í fótboltanum þegar ég fer á æfingarnar.“

Hún lýsir sér sem sóknarsinnuðum leikmanni sem nýtur sín best á kantinum, með boltann við fæturna og tækifæri til að takast á við varnarmenn.

„Mér finnst skemmtilegast að spila á kanti og finnst gott að vera með boltann í fótunum og geta farið maður á mann. Það sem ég þyrfti kannski helst að bæta er varnarleikurinn og staðsetningar án bolta.“

Ísabella hleður í eina af sínum „signature“ sleggjum gegn Haukum. Mynd/Hákon Oddson.

Markið hélt voninni lifandi

Þótt jöfnunarmarkið gegn Keflavík hafi síðar hlotið viðurkenningu fyrir glæsileikann er það fyrst og fremst mikilvægi þess fyrir liðið sem Ísabella nefnir þegar hún rifjar það upp.

„Það var ógeðslega gaman að skora þetta mark. Þetta mark skipti miklu máli vegna þess að við jöfnuðum leikinn og vorum þá enn í baráttu um sæti í deildinni. Svo er alltaf gaman að skora mark á seinustu mínútum leiksins.“

Þegar hún lítur yfir sumarið er hún ánægð með eigin frammistöðu, þótt hún sjái líka ýmislegt sem hefði mátt ganga betur.

„Mér fannst tímabilið bara ganga vel hjá mér persónulega, en auðvitað eru moment þar sem ég hefði viljað gera betur. Ég fékk mikla hjálp frá Jóa í sumar til að reyna bæta ákveðin atriði til dæmis repress og skotin mín. Heilt yfir finnst mér ég hafa tekið framförum sem leikmaður og hann hjálpaði mér mikið í því," segir Ísabella og vísar þar til Jóhanns Kristins Jóhannssonar, knattspyrnuþjálfara en hann er nágranni og fjölskylduvinur Ísabellu. Hann var ráðinn til Þróttar í Reykjavík sem þjálfari meistaraflokks kvenna haustið 2025 og stýrði liðinu í bikarúrslitaleik 2026, en Jóhann Kristinn á glæstan þjálfaraferil að baki með bæði Völsungi og kvennaliði Þórs/KA.

En aftur að Ísabellu en sumarið skilaði henni einnig Íslandsmeistaratitli með sameiginlegu liði Þórs/KA/Völsungs/Dalvíkur/KF í þriðja flokki. Liðið tryggði titilinn með sigri á Val/KH í lokaumferðinni í september.

„Það var mjög skemmtilegur endir á þessu fótboltasumri að vinna þennan titil með þeim. Það var líka skemmtilegt að fá að spila á móti bestu stelpunum á mínum aldri. Svo var gaman að fá að kynnast stelpunum í Þór/KA.“

Mamma bæði samherji og stuðningsmaður

Ein eftirminnilegasta stundin á ferli Ísabellu til þessa varð í júní 2024. Þá kom hún inn á fyrir móður sína, Hörpu Ásgeirsdóttur – sem er goðsögn í kvennaboltanum á Húsavík-, á 82. mínútu í sigri Völsungs á Vestra. Þetta voru fyrstu mínútur Ísabellu í deildarleik með meistaraflokki, en áður hafði hún leikið með liðinu í Lengjubikarnum.

Þær mæðgur hafa síðan einnig leikið saman. Ísabella segir það hafa tekið smátíma að átta sig á því hversu sérstakt það væri.

„Þegar ég byrjaði í meistaraflokki fannst mér mjög skrítið að vera á æfingum með mömmu minni. Þegar við spiluðum fyrsta leikinn okkar saman fattaði ég ekki hvað þetta var merkilegt, en ég sé það núna og það sem er skemmtilegast er að mamma hefur lagt upp mark á mig.“

Áhrif Hörpu ná þó langt út fyrir það sem gerist í leikjum. Hún er líka sá sem Ísabella getur rætt við um fótboltann og fengið stuðning hjá.

„Hún hefur haft mjög góð áhrif á mig, ég held ég væri ekki á þessum stað í dag án hennar. Við tölum mjög mikið saman um fótbolta og hún hjálpar mér að skilja hann betur og hvetur mig áfram. Svo er hún oftast til í að koma með mér upp á völl.“

Fer líka í fótbolta þegar hún er í fríi

Æfingar, leikir og ferðalög kalla á skipulag þegar sinna þarf skólanum samhliða. Ísabella segir það geta verið erfitt að missa úr kennslu en hún reyni að halda vel utan um námið.

„Það getur verið erfitt að missa af í skólanum en ég reyni alltaf að sinna náminu sem best þegar ég er ekki í skólanum.“

Frístundirnar fara meðal annars í að hitta vini og hvílast eftir álagið á vellinum. Fótboltinn er þó sjaldan langt undan, jafnvel þegar engin æfing er á dagskrá.

„Þegar það er frí í fótboltanum finnst mér gott að ná að slaka á og ná góðu ,,recovery". Mér finnst mjög skemmtilegt að hafa tíma til að hitta vini mína og ég fer líka mikið sjálf eða með Guðnýju vinkonu minni og leik mér í fótbolta.“

Fram undan eru landsliðsæfingar og áframhaldandi vinna við að bæta eigin leik. Ísabella hefur skýra sýn á það hvert hún vill stefna.

„Það er alltaf markmið að komast aftur í landsliðshóp. Ég er síðan með alls konar markmið sem snúast um að bæta það sem ég þarf að bæta. Fótboltadraumurinn er að komast út í atvinnumennsku og spila með A-landsliðinu,“ segir Ísabella Anna að lokum.

 

Nýjast