Frá athöfn á Flugsafninu í dag Mynd Hörður Geirsson/Þórhallur Jónsson
Viljayfirlýsing um framtíðarvarðveislu Þristsins undirrituð
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Ágúst Sigurðsson forstjóri Lands og Skógar, Sveinn Runólfsson formaður Þristasjóðs, Tómas Dagur Helgason formaður Þristavinafélagsins og Steinunn María Sveinsdóttir safnstjóri Flugsafns Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu þess efnis að Flugsafninu verði færð flugvélin TF-NPK, Þristurinn, til eignar og varðveislu.
Ráðgert er að vélin verði formlega afhent safninu í lok árs.
Sannkallaður gleðidagur og mikið heillaskref sem stigið var til að tryggja framtíðarvarðveislu þessarar sögufrægu flugvélar.
Frá þessu segir á Samfélagsmiðlasíðum Flugsafnsins