Út er komin bók Vignis Sveinssonar um réttir, fé og fjallskil í Dalvíkurbyggð.
Á ríflega 300 síðum segir Vignir frá sauðfjárbúskap á Árskógsströnd, í Svarfaðardal, Dalvík og Upsaströnd á tímabilinu frá 1875 til 2024. Fjallað er um smalamennsku, fjallskil og réttir. Fjárskiptin 1949-1951, riðuveikina og fjárskiptin 1988-1990. Brúun vatnsfalla og mikilvægi girðinga fyrir bændur.
Inn í frásögnina fléttar höfundur fróðleiksmolum og örsögum sem með öðru gera bókina framúrskarandi skemmtilega aflestrar.

Vignir Sveinsson
Vel á þriðja hundrað ljósmynda, fjölmargar af nafnkenndu fólki í leik og starfi, auka mjög á heimildar- og skemmtigildi ritsins.
Útgefandi er Völuspá útgáfa en í ritnefnd sátu auk höfundar, Jón Þórarinsson og Sveinn Elías Sveinsson en Daníel Hansen hafði umsjón með verkinu.
Nú í dag, fimmtudag, 29. október, mun Vignir verða í Bergi á Dalvík kl. 17.00, þar sem hann kynnir bók sína í máli og myndum. Vænta má óvæntra skemmtiatriða, auk þess sem bókin verður þar boðin gestum á sértökum vildarkjörum.
Og vitaskuld eru allir boðnir velkomnir.