Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi lýsir andstöðu við fyrirhugað vindorkuveri á Hólaheiði á Melrakkasléttu.
Þingið leggur áherslu á að virða rammaáætlun og telur óviðunandi að færa verkefni úr biðflokki í nýtingarflokk áður en umhverfis-, samfélags- og langtímaáhrif hafa verið metin til fulls.
Í ályktuninni er bent á að vindorkuverið feli í sér verulegt inngrip í viðkvæmt landsvæði með áhrifum á landslag, lífríki og upplifun svæðisins. Þá er lögð áhersla á að markmið um orkuskipti, atvinnuuppbyggingu og raforkuöryggi verði að nást í sátt við náttúruvernd, varfærni og lýðræðislega stjórnsýslu