Minnisvarðinn um síðutogara og síðutogarasjómenn hefur fengið afar jákvæðar viðtökur frá því hann var settur upp skammt norðan við athafnasvæði Siglingaklúbbsins Nökkva á Höefnerssvæðinu. Hann hefur vakið athygli bæði innanlands og utan. Eldri togarasjómenn stóðu fyrir söfnun vegna minnisvarðans, en þeir standa nú frammi fyrir því að um 1,5 milljónir króna vantar upp á til að greiða niður síðustu skuldir vegna þessa verkefnis.
Sigfús Ólafur Helgason einn forsvarsmanna verkefnisins segir viðbrögðin frábær. „Okkur berast nánast daglega skilaboð og símtöl frá fólki sem hrósar minnismerkinu og þakkar fyrir framtakið. Kertakrossinn við minnisvarðann hefur vakið athygli og að honum hafa fjölmargir komið til að tendra á kerti til minningar um ástvini sína. Þá hefur svæðið í auknum mæli fest sig í sessi sem helgur minningarstaður sjómanna,“ segir hann.
Öfluðu ríkinu tekna
Þá nefnir Sigfús að minnisvarðinn hafi einnig vakið athygli utan landsteinanna. „Erlendir ferðamenn hafa lýst aðdáun sinni á verkinu og umfjöllun hefur birst í erlendum miðlum, meðal annars í Hull á Bretlandi. Nú þegar skammdegið nálgast njóta ljósin í minnismerkinu sín sérstaklega vel og skapa eftirminnilega stemningu.“
Sigfús segir að verkefnið hafi reynst dýrara en upphaflega var gert ráð fyrir. Ríkið veitti 1,5 milljóna króna styrk til framkvæmdarinnar, en á móti þurfti að greiða rúmlega 2,4 milljónir króna í virðisaukaskatt vegna verkefnisins. „Þannig að við öfluðum ríkinu tæplega einnar milljóna króna í hreinar tekjur í ríkissjóð af þessu fallega minnismerki. Þetta er svo galið að það er eiginlega hlægilegt.“
Markmiðið að borga allt upp fyrir áramót
Sigfús bendir á að verkefnið hafi allt verið unnið í sjálfboðavinnu þar sem fremstir í flokki fóru fjórir fyrrverandi sjómenn. „Staðan er þannig að þrátt fyrir mikinn stuðning fjölmargra velunnara vantar enn 1,5 milljónir króna til að greiða síðustu skuldir vegna verkefnisins,“ segir hann. Því hafi verið opnað fyrir frjáls framlög frá einstaklingum og fyrirtækjum. „Markmiðið er að allar skuldir vegna minnisvarðans verði greiddar fyrir áramót,“ segir Sigfús og er bjartsýnn á að það muni ganga upp. „Í öllum þeim verkefnum sem við fyrrum sjómenn höfum komið að hefur okkur tekist að ljúka verkinu. Við erum sannfærðir um að það muni einnig takast núna,“