Tæplega 1300 manns starfa við ferðaþjónustu á Akureyri

Skatttekjur Akureyrarbæjar af ferðaþjónustu eru í kringum 1,5 milljarðar króna á ári. Millilandaflug…
Skatttekjur Akureyrarbæjar af ferðaþjónustu eru í kringum 1,5 milljarðar króna á ári. Millilandaflug til og frá Akureyrarflugvelli hefur rennt stoðum undir ferðaþjónustu sem heils árs atvinnugrein á svæðinu.

„Ferðaþjónusta hefur á undanförnum árum orðið afar mikilvæg stoð í atvinnulífi á Akureyri,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Í Akureyrarbæ voru 1.276 manns skráð starfandi í ferðaþjónustu árið 2025, en það er 11,4% af starfandi fólki á Akureyri. Ríflega 200 ferðaþjónustufyrirtæki voru skráð í sveitarfélaginu, 12% af launagreiðendum og 8,4% af atvinnutekjum á Akureyri komu úr ferðaþjónustu. Fyrir Norðurland eystra í heild eru samsvarandi tölur þær að 8,5% vinnandi fólks starfaði við ferðaþjónustu eða 2.046 í allt og fyrirtækin eru 337.

Skatttekjur Akureyrarbæjar af ferðaþjónustu voru um 1,5 milljarðar króna árið 2024 en Jóhannes telur líklegt að þær tölur hafi hækkað síðan þá. Til viðbótar nefnir hann að Hafnasamlag Norðurlands hefur tæpan milljarð í tekjur af komum skemmtiferðaskipa.

Mikil fjárfesting

Jóhannes segir ferðaþjónustu hafa eflst til muna hin síðari ár, bæði með auknu beinu millilandaflugi á Akureyrarvelli og fjárfestingum í innviðum, m.a. hótelbyggingum. Enn er verið að bæta við á þeim vettvangi, m.a. með milljarða fjárfestingu í tengslum við Skógarböðin. Þó vissulega séu þau utan bæjarmarka hafi þau viðtæk áhrif á atvinnulíf í Akureyrarbæ.

„Greinin hefur bæði dregið að fjárfestingar og aukið fjölbreytni í atvinnutækifærum í sveitarfélaginu, þar sem virðiskeðja greinarinnar er víð,“ segir Jóhannes.

Hann bætir við að mikið og gott starf Markaðsstofu Norðurlands og Flugklasans hafi rennt stoðum undir ferðaþjónustu sem heils árs atvinnugrein á svæðinu, sem er gríðarmikilvægt fyrir framtíðar uppbyggingu starfa í bænum.

Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Ánægjuleg uppbygging á Akureyri

„Um 8,4% atvinnutekna á Akureyri koma nú frá ferðaþjónustu og tæplega 1300 manns störfuðu í atvinnugreininni 2025. Fjárfestingar hafa einnig komið til í ferðaþjónustu víðar í Eyjafirði sem byggja undir sterkt atvinnulíf á svæðinu öllu og styrkja Akureyri einnig þótt í öðrum sveitarfélögum séu. Fyrir sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins er fjölbreytt og sterkt atvinnulíf sem byggir á heils árs störfum afar mikilvægt fyrir nærsamfélagið allt.

Uppbygging ferðaþjónustu á Akureyri og þeirrar þjónustu sem henni fylgir og heimafólk getur nýtt, er því sérstaklega ánægjuleg,“ segir Jóhannes.

Nýjast