Stofna samtökin Björgum Kristnesspítala

Stofnfundur samtakanna Björgum Kristnesi fer fram á Hælinu, setri um sögu Berklanna á 99 ára afmælis…
Stofnfundur samtakanna Björgum Kristnesi fer fram á Hælinu, setri um sögu Berklanna á 99 ára afmælisdegi Kristneshælis.

Þann 1. nóvember næstkomandi verða liðin 99 ár frá vígslu Kristneshælis í Eyjafirði. Ástand hússins er afar slæmt og búið er að loka endurhæfingunni.

„Við erum ansi mörg sem viljum leggja okkar á vogarskálarnar svo gert verði við húsið og endurhæfingunni haldið áfram á þessum fallega og heilandi stað með skóginn fyrir ofan og sérstaka endurhæfingarsundlaug innanhúss. Endurhæfingin er mikilvæg fyrir allt Norður- og Austurland,“ segir María Pálsdóttir sem er ein af velunnurum Kristness.

Liður í þeirri baráttu er að stofna félagasamtökin Björgum Kristnesspítala. Boðað hefur verið til stofnfundar á Hælinu, setri um sögu berklanna, 1. nóvember klukkan 17. Athöfnin hefst fyrir utan með varðeldi og heitu kakói

Að því loknu fer stofnfundur fram með samþykktum félagsins og kosningu í stjórn. Markmið félagsins er að þrýsta á þar til bær yfirvöld að halda áfram með endurhæfingu á Kristnesi og byrja að safna fyrir endurbótum.

Nýjast