Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi

Daníel Hansen, forstöðumaður Fræðaseturs um Forystufé, Freyr Antonsson og Silja Pálsdóttir, eigendur…
Daníel Hansen, forstöðumaður Fræðaseturs um Forystufé, Freyr Antonsson og Silja Pálsdóttir, eigendur Arctic Sea Tours og Elín S. Sigurðardóttir, forstöðukona Heimilisiðnaðarsafnsins. Mynd MN

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á Norðurhjarasvæðinu á dögunum þar sem ferðaþjónustu fólk kynntist fjölbreyttri starfsemi sem þar fer fram, sögu og nærumhverfi.

Venju samkvæmt voru veittar en með þeim vill Markaðsstofa Norðurlands vekja athygli á því öfluga starfi sem unnið er í ferðaþjónustu á svæðinu og heiðra þau sem hafa skarað fram úr í uppbyggingu, þróun og samstarfi.

Arctic Sea Tours á Dalvík er fyrirtæki ársins að þessu sinni. Fyrirtækið hefur boðið upp á hvalaskoðun frá árinu 2009 og unnið að því að þróa þjónustu sína og auka fjölbreytni ferðanna, með öryggi og gæði í fyrirrúmi. Fyrirtækið gerir út tvo eikarbáta og tvo RIB-báta, en nýjasta viðbótin er Rökkur sem bættist í flotann vorið 2024.

Elín S. Sigurðardóttir, sem veitt hefur Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi forstöðu um árabil, hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi Heimilisiðnaðarsafnið er eina safn sinnar tegundar hérlendis og gegnir margþættu hlutverki, við sýningahald, rannsóknir, fræðslu og miðlun menningar. Lögð er áhersla á að veita innsýn í vinnu kvenna og karla sem fram fór á heimilum og var stór þáttur hins daglega lífs.

Hvatningarverðlaunin hlaut Daníel Hansen fyrir uppbyggingu og starf Fræðaseturs um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði. Þar hefur hann staðið að áhugaverðri upplifun sem tengir saman íslenska búskaparhefð, fræðslu og menningu og gefur gestum innsýn í sérstæðan þátt í sögu og lífi þjóðarinnar.

Nýjast