Góðri síldarvertíð er lokið

Vilhelm Þorsteinsson EA-11 við bryggju á Eskifirði
Vilhelm Þorsteinsson EA-11 við bryggju á Eskifirði

Uppsjávarskipin Vilhelm Þorsteinsson EA-11 og Bjarni Ólafsson AK-70 komu í land á mánudaginn með síðasta síldarfarm ársins. Vilhelm Þorsteinsson kom til Eskifjarðar með um 950 tonn og Bjarni Ólafsson landaði 900 tonnum á Fáskrúðsfirði.

Síldarvertíðinni, sem hófst um miðjan september, er þar með lokið hjá Samherja.

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni segir að síðasti túrinn hafi gengið vel. „Já, það var bara fínasta veiði í síðasta túrnum. Þetta var sólarhringur, höfn í höfn, og við fengum aflann í tveimur holum. Við vorum hérna austan við landið, á Seyðisfjarðardýpinu og Norðfjarðardýpinu, sem eru svipaðar slóðir og við höfum verið á undanfarnar vikur,“ segir Guðmundur.

Hráefnið er ekki af verri endanum. „Þetta er bara mjög fín síld, blanda af íslenskri og norskri, og gott hráefni,“ segir Guðmundur.

Ágætis veiði en brælutíð annað slagið

„Ég tel að vertíðin hafi gengið nokkuð vel. Það hefur verið ágætis veiði á köflum en vissulega hefur verið brælutíð annað slagið. Veiðiferðirnar hafa verið misjafnlega langar eftir aðstæðum. Okkur er líka stýrt eftir því hvernig gangurinn er í vinnslunni. Þetta snýst mikið um að koma hráefninu reglulega til vinnslu og tryggja þannig að ferskleiki afurða sé sem mestur,“ segir Guðmundur.

Skipið hefur landað allri síldinni á Eskifirði á vertíðinni og fer hráefni til vinnslu hjá Eskju.

Frábært skip og fyrsta flokks áhöfn

Guðmundur nefnir að lykilatriði í veiðunum, nú sem fyrr, sé gott skip og áhöfn. „Þetta er auðvitað frábært skip en þú gerir ekkert nema með góða áhöfn og hún er fyrsta flokks hjá okkur, hörkukarlar og áhugasamir sjómenn sem eru hérna og hafa verið.“

Að lokinni löndun tekur við sigling til heimahafnar á Akureyri. Fljótlega hefst undirbúningur fyrir komandi loðnuvertíð. „Nú er stopp í einhvern tíma og svo þarf bara að krossa fingur og vona að það verði gefin út meiri loðna,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Vilhelm Þorsteinssyni og hluta áhafnar í gær þegar þrif á skipinu stóðu yfir að lokinni síðustu veiðiferð síldarvertíðarinnar þetta árið.

  • Vilhelm Þorsteinsson EA-11
  • Sigurður Pálsson
  • Ægir Þormar Pálsson
  • Haraldur Guðmannsson
  • Vilhelm Þorsteinsson EA-11

Það er á www.samherji.is sem fyrst er sagt frá þessu.

Nýjast