Lára Brynhildur Eiríksdóttir fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 21. október. Að því tilefni fékk Lára Brynhildur heimsókn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra, sem færði afmælisbarninu blómvönd.
Frá þessu segir á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar og þar er Lára Brynhhildur í skemmtilegu viðtali sem lesa má hér á eftir.
Lára Brynhildur, sem hélt 170 manna veislu í Reykjavík í síðustu viku og heldur aðra veislu á heimili sínu á Lögmannshlíð í dag, er Akureyringur vikunnar.
Ég er bara svo heppin að vera glaðlynd“
Lára er glaðlynd og lífsglöð og það leynir sér ekki að henni finnst gaman að vera til. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en flutti norður árið 2002 til að dvelja hjá dóttur sinni og hefur búið síðustu árin á Lögmannshlíð. „Hér líður mér vel. Það er ekki aðeins norðlenska loftið heldur allt góða fólkið. Hér er gott að vera.“
Aðspurð segist hún ekki hafa nein ráð handa þeim sem vilja ná 100 ára aldri. „Ég hef alltaf verið kát og glöð og það hefur bjargað mér – að vera ánægð með mitt. Ég heyri oft gamalt fólk lýsa því yfir hvað það gerði til að verða svona gamalt en sjálf var ég aldrei í íþróttum og kann ekki einu sinni að synda, enda alltaf verið vatnshrædd. En ég hef líka aldrei drukkið og aldrei reykt. Ég er bara svo heppin að vera glaðlynd og finnst gaman að vera til.“
Fimmtán systur, 34 afkomendur og heila öld að bak
Lára Brynhildur ólst upp í stórum systrahópi en þær systurnar voru 15 talsins. Sjálf á hún 34 afkomendur og er orðin langalangalangamma. Hún segist eiga góðar minningar frá æskunni í Reykjavík. „Við systurnar vorum allar samrýmdar og það var náttúrulega talað út í eitt. Þetta hefur alltaf þótt sérstakt, að vera svona margar systur og ætti vísindalega ekki að vera hægt. Við bjuggum í Sogamýrinni í Reykjavík sem var dálítið út úr á þessum tíma enda var pabbi bóndi. Svo þegar við urðum eldri vorum við allar að kíkja heim og vorum þá gjarnan flestar ófrískar. Við vorum alltaf svo góðar vinkonur.“

Lára starfaði lengi í Hagkaup í Reykjavík en síðar hjá SÍBS og Reykjalundi. Hún fylgist vel með því sem er að gerast, horfir daglega á fréttir og er meira að segja á Facebook. Einnig er hún dugleg að prjóna, hekla og hlusta á bækur. „Ég er búin að hekla teppi handa öllum mínum afkomendum og svo er ég með heyrnatól og læt lesa fyrir mig. Þessa dagana er ég að kynnast Laxness. Ég hafði hvorki tíma né þroska fyrir það fyrr,“ segir hún hlæjandi.
,,Mér var gefið það að hafa Guð og gott fólk í kringum mig.“
Hún bíður spennt eftir að veisluhöldin hefjist í dag. Í tilefni afmælisins bað hún gesti sína að sleppa öllum gjöfum en styrkja í staðinn starf Reykjalundar. „Starfsfólkið hér er á fullu að undirbúa, ég bíð bara eins og drottningu sæmir. Stelpurnar hér eru svo góðar við mig og heimsækja mig meira að segja eftir að þær eru hættar að vinna. Mér var gefið það að hafa Guð og gott fólk í kringum mig.“