Akureyri Um 330 íbúðir á þéttingarsvæðum

Nú er gert ráð fyrir að hús á nýju byggingarsvæði ofan við Glerártorg verði fjögur, en áður hafði ve…
Nú er gert ráð fyrir að hús á nýju byggingarsvæði ofan við Glerártorg verði fjögur, en áður hafði verið gert ráð fyrir fimm húsum og allt að 120 íbúðum.

Tæplega 330 nýjar íbúðir eru í byggingu eða undirbúningi á þéttingarsvæðum hér og þar um Akureyri.

Þar af eru 50 íbúðir í byggingu í fjölbýðishúsi við Skarðshlíð, átta íbúðir við Norðurgötu sem komnar eru í sölu. Áform eru um byggingu fjölbýlishúss með ríflega 50 íbúðum við Viðjulund, 60 íbúðir verða við Hofsbót í miðbæ Akureyrar og um 50 íbúðir við Austursíðu, við Norðurtorg eru á teikniborðinu. Einnig er unnið að því að byggja upp verslun, þjónustu og nýjar íbúðir við Hrísalund 3 og 5 í nýjum fjölbýlishúsum.

Fjögur hús við Glerártorg í stað fimm

Þá er unnið að endurskoðun skipulags á Gleráreyrum þar sem upphaflega var gert ráð fyrir að risu fimm fjölbýlishús í námunda við Glerártorg með allt að 120 íbúðum. Nú er gert ráð fyrir að húsin verði fjögur. Á jarðhæð verður rými fyrir verslun- og þjónustu samkvæmt því sem Eik fjasteignafélag kynnti árið 2024 þegar hugmyndin var fyrst kynnt.

Við áframhaldandi vinnslu fór málið í bið en var endurlífgað í byrjun þessa árs. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að málum er varða stofnstíg norðan og austan við lóðina.

Uppfærð tillaga að deiliskipulagi verður lögð fram síðar í vetur, að því er fram kemur í minnisblaði um stöðu á byggingamarkaði sem lögð var fyrir skipulagsráð nýverið. Líklegt er að húsum fækki úr fimm í fjögur og að íbúðum fækki í samræmi við það.

Nýjast