Besti bitinn-Frosið verð frá upphafi og þannig verður það áfram

Besti bitinn, óbreytt verð frá upphafi  og verður áfram næsta árið.  Myndi  samherji.is
Besti bitinn, óbreytt verð frá upphafi og verður áfram næsta árið. Myndi samherji.is

Í dag, 29. október, er eitt ár liðið frá því að Besti bitinn af þorskinum fór á markað á Íslandi. Frá því að þessir frosnu þorskhnakkar frá Samherja komu í sölu í matvöruverslunum innanlands hefur heildsöluverð til verslana verið óbreytt. Samherji ætlar að gera enn betur og mun ekki hækka verð á vörunni til verslana næstu 12 mánuði til viðbótar.

Sameiginlegt verkefni

Með því að halda verðinu óbreyttu vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum í því sameiginlega verkefni að halda aftur af verðhækkunum.

„Þegar Besti bitinn af þorskinum fór á markað þá vildum við bjóða hollan og góðan valkost úr okkar framleiðslu á hóflegu verði. Í núverandi árferði er mikilvægt að allir leggist á eitt og sendi skýr skilaboð í baráttunni við verðbólgu. Því viljum við halda verðinu óbreyttu áfram í eitt ár til viðbótar og hvetjum auðvitað verslanir til að gera slíkt hið sama,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf.

Landsmenn kunna að meta góðan fisk

Varan fæst í öllum helstu matvöruverslunum og henni hefur verið vel tekið af neytendum. „Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem benda til þess að landsmenn kunni að meta góðan fisk. Einnig er jákvætt ef sala á vörunni eykur í leiðinni vitund almennings um íslenskan sjávarútveg og þær afurðir sem framleiddar eru úr hafinu í kringum landið,“ segir Baldvin.

Almennt er talið að hnakkinn sé þykkasti og safaríkasti bitinn af þorskinum og er nafnið á vörunni skírskotun til þess. Um er að ræða hágæðaafurð úr þorski sem veiddur er á djúpslóð og unninn í vinnsluhúsum Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu. Skip Samherja eru við veiðar flesta daga ársins og tryggja þannig stöðugt framboð hráefnis sem unnið er af fagfólki í hátæknivinnslum fyrirtækisins. Markmiðið er alltaf að hámarka gæði vörunnar.

Bragðgóður, fljótlegur og hollur valkostur

Þorskhnakkarnir eru seldir frosnir og er hverjum bita pakkað sérstaklega í lofttæmdar umbúðir. Varan er því einstaklega aðgengileg og hentug til matreiðslu hvort sem elda á einn bita eða fleiri. Þorskhnakki er allt í senn bragðgóður, fljótlegur og afar hollur valkostur sem hentar vel sem hversdagsmatur eða ljúffengur veisluréttur við öll tilefni.

Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar, uppskriftir og fróðleik um Besta bitann.

Frosnir þorskhnakkar frá Samherja hafa verið fáanlegir í matvöruverslunum á Íslandi í eitt ár.
Frosnir þorskhnakkar frá Samherja hafa verið fáanlegir í matvöruverslunum á Íslandi í eitt ár.

Frá þessu segir á heimasíðu Samherja

 

Nýjast