Ég kann ekki við þetta

Vilborg Gunnarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir

Undanfarið hafa þingmenn úr ríkisstjórnarflokkum sagt sig úr, ýmist flokki sínum eða þingflokki.

Á dögunum barst slík frétt. Þetta kom flestum á óvart því þarna fór einstaklingur sem hefði átt að vita út í hvað hann var að fara þótt hann héldi öðru fram í Kastljósviðtali.

Hann var borgarstjóri eitt kjörtímabil og hann vildi líka verða forseti Íslands.

Ábyrgð kjörinna fulltrúa hvort sem er í sveitastjórnum eða á Alþingi er mikil. Fyrir kosningar fara þeir mikinn og lofa að berjast fyrir mikilvægum málefnum. Ef þeir eru lánsamir, kemst flokkurinn þeirra í stjórn sem á Íslandi er alltaf samsteypustjórn tveggja til þriggja flokka. Slík samvinna krefst fórna því samið er um málefni sem setja á á oddinn.

Okkar ágæti forsætisráðherra sagði nýlega í tilefni deilna innan ASÍ að samtökin væru stærri en einstaklingarnir sem þar starfa. Sama má segja um Alþingi.

Þingmaðurinn sem sagði af sér á dögunum virðist vera það sjálfhverfur að hann hélt því fram að flokkurinn hans hefði fengið meira fylgi vegna hans. Samt gefst hann upp núna. Því hvað er það annað en uppgjöf að hætta á miðju kjörtímabili í stað þess að berjast áfram fyrir málefnið, sem reyndar hefur fengið nokkurn framgang á þingi. Við hverju bjóst hann? Að það yrði auðvelt að koma málum fram? Og finnst honum hann ekki vera að bregðast kjósendum sínum með því að stíga frá borðinu þar sem ákvarðanirnar eru teknar?

Hann segir að í upphafi hafi hann ekki vitað út í hvað hann var að fara. Segðu mér annan. Hann talaði líka um skort á forystu innan þingflokksins. Við sem stöndum fyrir utan gátum með réttu lesið milli lína þarna þar sem það er opinbert að þáverandi þingflokksformaður er í veikindaleyfi. Það hefur sýnt sig undanfarið að menn telja það ekki fallega framkomu að tilkynna fólki á sjúkrabeði að ekki sé óskað eftir kröftum þeirra í þau embætti sem þeir gegna og án þess að vita það, finnst mér líklegt að sú hafi verið raunin.

Mér finnst líka trúverðugt að í slíkum aðstæðum skapist einhver óreiða, ekki síst þegar formaður flokksins er ráðherra málaflokks sem krefst mikillar fjarveru. En hvað gera menn þá? Sérstaklega reyndir menn sem meðal annars hafa gegnt borgarstjórastöðu. Þeir segja ekki af sér. Þeir segja sig ekki frá hópnum. Þeir taka af skarið og taka sjálfir forystu í stað þess að gefast upp. Þeir bretta upp ermar. Eða snýst þetta um eitthvað allt annað?

Ég kann ekki við þetta. Maðurinn er búinn að koma málum sínum þannig fyrir að nú getur hann setið í þægilegu þingsæti án áreitis, án fundaskyldu í flokknum; hann heldur launum sínum og forystu í nefnd sem honum sjálfum finnst skemmtileg því þá fær HANN að ferðast og kynnast áhugaverðu fólki.

Svei.

Nýjast