Aðeins eitt barn á biðlista eftir leikskólaplássi á Akureyri

Góð staða í leikskólamálum á Akureyri
Góð staða í leikskólamálum á Akureyri

Vel gengur að útvega börnum leikskólapláss hjá Akureyrarbæ en aðeins eitt barn sem náð hefur innritunaraldri er nú á biðlista

Á Akureyri eru 1040 leikskólabörn. Starfið fer fram í tíu leikskólum á 13 starfstöðum auk eins sjálfstætt starfandi leikskóla. Í Hrísey er samrekinn leik- og grunnskóli.

Í leikskólum bæjarins starfa 355 manns. Samkvæmt tölum frá október 2025 voru 45,4% starfsfólks í deildarstarfi með kennaramenntun, 17,4% voru með aðra háskólamenntun og 37,3% voru án háskólamenntunar. Tölurnar ná ekki til starfsfólks við sérkennslu, stjórnun og afleysingar.

„Þótt áherslur einstakra skóla séu ólíkar leggja þeir allir mikla áherslu á gott náms- og starfsumhverfi, markvissa málrækt, vellíðan barna og starfsfólks með leikinn að leiðarljósi. Markmiðið er að hvert barn fái notið sín og dafni í öruggu og hvetjandi námsumhverfi,“ segir Erna Rós Ingvarsdóttir, verkefnastjóri leikskóla hjá Akureyrarbæ.

Í öllum leikskólunum starfa sérkennslustjórar sem vinna með starfsfólki og foreldrum að því að mæta þörfum barna. Þegar þörf er á frekari aðstoð er leitað samstarfs við skólaþjónustu Akureyrarbæjar. Stuðningur og íhlutun taka mið af þörfum hvers barns og fer stærstur hluti starfsins fram innan leikskólans.

Flestir leikskólar nálægt fullri nýtingu

Í haustinnrituninni 2026 er miðað við börn fædd til og með 31. ágúst 2025. Eitt barn sem hefur náð innritunaraldri var á biðlista í október og unnið var að því að finna því pláss. Á meðan fær fjölskyldan heimgreiðslur. Erna Rós Ingvarsdóttir, verkefnastjóri leikskóla hjá Akureyrarbæ segir að þótt sumir leikskólar séu ekki fullsetnir séu margir þeirra nálægt fullri nýtingu og því erfitt að segja nákvæmlega til um biðtíma eftir leikskólaplássi.

Börn sem fædd eru til og með 31. ágúst 2025 fengu leikskólapláss í haust. „Eins og staðan er í dag er eitt barn á biðlista sem náð hefur innritunaraldri og verið er að vinna í að koma því inn,“ segir Erna Rós.

Nýjast