Drykkir Innbyrðis spila á Græna hattinum annað kvöld

Meðlimir Drykkja Innbyrðis     Mynd Þorgeir Baldursson
Meðlimir Drykkja Innbyrðis Mynd Þorgeir Baldursson

Hljómsveitin Drykkir Innbyrðis, sem var stofnuð á Akureyri árið 1986, heldur útgáfutónleika á Græna hattinum laugardaginn 31. október. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér 11 laga plötu með níu eldri lögum og tveimur nýjum. Lögin hafa öll fengið góðar viðtökur á streymisveitum og hafa nú verið spiluð yfir 25 þúsund sinnum á Spotify.

Hljómsveitin var, sem fyrr segir, stofnuð í ársbyrjun 1986 og tók þátt í Músíktilraunum í apríl sama ár, þar sem hún hafnaði í öðru sæti. Sveitin var áberandi á þessum árum og starfaði til ársins 1990, þegar hún lagðist í dvala eins og títt er.

Það var svo á síðasta ári sem hugmyndin kviknaði um að taka upp þráðinn að nýju. Í kjölfarið hóf sveitin vinnu við nýja plötu sem kom út föstudaginn 18. september á Spotify og YouTube.

Níu eldri lög og tvö ný

Platan, sem ber sama nafn og hljómsveitin, hefur að geyma 11 lög, með lögum og útsetningum eftir hljómsveitarmeðlimi. Þar má finna níu eldri lög úr sögu sveitarinnar og tvö ný. Textarnir eru eftir Rúnar Örn Friðriksson, söngvara hljómsveitarinnar. Platan var tekin upp í Menningarhúsinu Hofi og sá Haukur Pálmason um upptökur og hljómjöfnun.

Lagalistinn spannar fjölbreytt efni og ber meðal annars að nefna lögin Á vit feðranna, Hvítur sandur, Framtíðin, Í gegnum tíðina, Ísmolar og Aldrei gleyma þér. Plötunni lýkur á ASAP, sem er hljóðfæraleikur án söngs.

Vínilplata og bolir til sölu

Útgáfutónleikarnir á Græna hattinum hefjast klukkan 21 laugardaginn 31. október. Þar gefst tónleikagestum tækifæri til að heyra sveitina flytja tónlist sína á ný og fagna útgáfu plötunnar. Vínilplata og bolir verða jafnframt til sölu á tónleikunum.

Enn eru miðar í boði í forsölu og hægt er að nálgast þá á www.graenihatturinn.is en einnig verða þeir til sölu við innganginn á laugardaginn.

Meðlimir Drykkja Innbyrðis eru Rúnar Örn Friðriksson, söngur og textar, Eiríkur S. Jóhannsson, gítar, Ingvi Rafn Ingvason, trommur og slagverk, Viðar Garðarsson, bassi, og Haukur Eiríksson, hljómborð.

Með því að smella á  slóðina hér fyrir  neðan má heyra eitt laga hljómsveitarinnar,  þeir nefna það,   Í fótspor feðranna.

https://open.spotify.com/track/2eiGsRRHo0WiPc2aiuxodw?si=DF6jwWs0TnCgkhNkeq3zhA&utm_source=copy-link

Nýjast