Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum

Akureyrarflugvöllur    Mynd Hörður Geirsson
Akureyrarflugvöllur Mynd Hörður Geirsson

Breytingar á Loftbrú taka ekki á raunverulegum vanda landsbyggðarfólks sem þarf oft að ferðast með skömmum fyrirvara og greiða tugi þúsunda króna fyrir stakar flugferðir. Þetta er mat Þórodds Bjarnasonar, prófessors í félagsfræði og sérfræðings í byggðaþróun, sem leggur til nýja nálgun við niðurgreiðslu á innanlandsflugi.

Í Silfrinu á RÚV síðastliðið mánudagskvöld sagði Þóroddur að umræðan um Loftbrúna hafi beinst um of að því hvort ríkið eigi að niðurgreiða flugmiða um sjö eða níu þúsund krónur, í stað þess að horfa á hvað flugferðir kosta í raun og veru. Núverandi fyrirkomulag tryggi ekki fyrirsjáanleika fyrir þá sem þurfa skyndilega að ferðast vegna veikinda í fjölskyldunni eða annarra óvæntra atburða, en dæmi séu um að miði aðra leið kosti allt að 50 þúsund krónur sé hann keyptur með skömmum fyrirvara.

Þóroddur leggur til að ríkið semji beint við flugfélagið um kaup á flugmiðum á föstu verði í stað þess að miða við hlutfall af breytilegu miðaverði. Sem dæmi nefndi hann að ríkið gæti samið við Icelandair um kaup á miðum á um 22.500 krónur stykkið. Ef ríkið niðurgreiddi svo níu þúsund krónur af hverjum miða stæði farþeginn eftir með fastan eigin kostnað upp á 13.500 krónur, óháð því hvenær ferðin er bókuð.

Prófessor  Þóroddur Bjarnason

 Við ætlum að kaupa 80 þúsund miða

„Hvernig í ósköpunum stendur á því að það er ekki bara sagt: Við ætlum að kaupa hérna 80.000 miða og þeir eru bara á einhverju föstu meðalverði?“ spurði Þóroddur í þættinum og ítrekaði að málið snerist um eðli samninganna frekar en aukna styrkfjárhæð.

Tilefni umræðunnar er að innviðaráðherra kynnti á föstudag áform um að breyta niðurgreiðslum Loftbrúar úr 40 prósentum af miðaverði í fasta upphæð, eða 7.000 krónur á fluglegg. Eftir harða gagnrýni hefur ráðherra lýst því yfir að skoðað verði að hækka niðurgreiðsluna í 9.000 krónur.

Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verða framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi (40%).

Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu. Viðtökur voru góðar og ferðum með Loftbrú hefur fjölgað ár frá ári. Á síðustu árum hefur heildarkostnaður vegna Loftbrúar farið nokkuð fram úr áætlunum. Af þessum sökum ákváðu stjórnvöld að gera breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar í því skyni að nýta fjárveitingar ríkisins sem best.

Nýjast