Hjaltastaðir fá 1,6 milljóna króna styrk

Gerður Ósk Hjaltadóttir til vinstri,  tekur við styrk að upphæð 1,6 milljónir króna. Svava Arnardótt…
Gerður Ósk Hjaltadóttir til vinstri, tekur við styrk að upphæð 1,6 milljónir króna. Svava Arnardóttir formanni Geðhjálpar afhenti styrkinn Mynd á facebooksíðu Hjaltastaða- Sigtryggur Ari Jóhannsson

Hjaltastaðir hafa hlotið 1,6 milljóna króna styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis fyrir verkefnið „Frá vansæld til tengsla og þátttöku“. Styrkurinn er mikilvæg viðurkenning á þeirri hugmyndafræði og framtíðarsýn sem starfsemin byggir á og mun styðja við áframhaldandi þróun verkefnisins.

Markmið verkefnisins er að skapa nýtt og einstaklingsmiðað stuðningsúrræði fyrir fólk 18 ára og eldra á einhverfurófi og/eða með fjölþættan geðrænan vanda sem hefur átt erfitt með að finna sér stað innan hefðbundinna þjónustukerfa. Áhersla er lögð á félagsleg tengsl, merkingarbæra iðju, virkni og þátttöku, þannig að hver einstaklingur fái tækifæri til að vaxa og dafna á eigin forsendum.

Færist nær því að verða að veruleika

Alls bárust 107 umsóknir í Styrktarsjóð geðheilbrigðis í ár og voru aðeins 13 verkefni valin til styrkveitingar. Það gerir viðurkenninguna sérstaklega mikilvæga fyrir Hjaltastaði.

Forsvarsmenn verkefnisins þakka Geðhjálp og Styrktarsjóði geðheilbrigðis fyrir traustið og stuðninginn. Með styrknum færist verkefnið nær því að verða að veruleika og skapa ný tækifæri fyrir einstaklinga sem þurfa á fjölbreyttari og mannlegri stuðningi að halda.

Nýjast