Sjòræningjadagur í Glerárlaug

Sjóræningjadagurinn er skemmtilegur siður í stafinu hjá Sundfélaginu Óðni  Myndir  aðsendar
Sjóræningjadagurinn er skemmtilegur siður í stafinu hjá Sundfélaginu Óðni Myndir aðsendar

Þann 30. október var svokallaður Sjóræningjadagur í Glerárlaug haldinn hátíðlegur. Hann er fyrir öll börn í sundskóla sundfélagsins Óðins. Þá bregðum við á leik og köfum eftir gulli og gersemum sem Krókur Skipstjóri hefur safnað sér í áranna rás.

Sjóræningjadagurinn var að þessu sinni haldinn hátíðlegur í 25. skipti( ef minni Króks er ekki á ð svíkja hann). Upphaflega var honum komið á til að hvetja byrjendur til að kafa og enn er það aðal tilgangur hans kennslulega séð en fyrst og fremst hefur hann reynst spennandi og skemmtilegur fyrir okkur öll.

Til að koma u.þ.b. 200 börnum og 80-100 foreldrum fyrir á 3 klst. í jafn litla búningsklefa og eru í Glerárlaug sér Krókur Skipstjóri um að skammta tíma á hópana og reka uppúr og ofaní.

Að lokinni fjársjóðsköfun kvitta svo börnin fyrir í gestabók Króks.

Nýjast