Ég flutti heim til Akureyrar í miðjum heimsfaraldri, eftir að hafa dvalið í höfuðborginni og erlendis um árabil. Fljótlega eftir að samfélagið rúllaði aftur af stað var ég spurð hvort ég vildi ekki taka þátt í bæjarmálunum, hafandi verið virk í stúdentapólitíkinni áður og með mikinn áhuga á samfélaginu. Ég svaraði neitandi í fyrstu, ég ætti ekki upp á dekk í bæjarpólitíkinni á Akureyri, ég kynni nefnilega ekki íþróttapólitík. Héldi eiginlega hvorki með KA né Þór; þætti vænt um söguna af því þegar KA var stofnað í Schiöth-húsi langafa míns og -ömmu en væri búsett í Þorpinu og Glerárskólagengin. Má halda með báðum? Eða hvorugum?
Einhverju seinna ákvað ég þó að gefa mig mildilega að bæjarmálunum, þrátt fyrir skort á keppnisskapi á áhorfendapöllum íþróttaleikvanga. Nú sit ég sem aðalmaður fyrir hönd Samfylkingar í Umhverfis- og mannvirkjaráði, í minnihluta en með atkvæðisrétt. Málaflokkarnir sem heyra undir Umhverfis- og mannvirkjaráð eru viðamiklir – eins og nafn ráðsins gefur til kynna. Ráðið fer með öll umhverfismál sveitarfélagsins; náttúruvernd, úrgangsstjórnun, loftslagsmál og almenningssamgöngur en einnig heyra allar fasteignir í eigu sveitarfélagsins undir það; grunnskólar, leikskólar, sundlaugar, söfn og íþróttamannvirki. Að auki falla gatnagerðamál, stígagerð, Lystigarðurinn og rekstur slökkviliðs og Hlíðarfjalls undir ábyrð ráðsins, og þá er ekki allt upptalið.
Eðli málsins samkvæmt eru teknar ákvarðanir um umtalsverð útgjöld innan ráðsins, og undanfarnar vikur hefur meirihlutinn unnið að gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar sviðsins fyrir þetta kjörtímabil. Í lok október lá fyrir tillaga meirihlutans sem vísað var til bæjarráðs til fyrstu umræðu. Ég játa að þegar ég fékk loks tölurnar til yfirlestrar fannst mér svolítið erfitt að skilja samhengi þeirra. Kannski vegna þess að ég held hvorki með KA né Þór.
Fé til framkvæmda
Samkvæmt tillögu meirihlutans fer yfir þriðjungur framkvæmdafjár í A-hluta reksturs bæjarins til þessara tveggja íþróttafélaga á kjörtímabilinu. Tæpir fjórir milljarðar króna. Til samanburðar er heildarupphæð framkvæmdafjár til menningarmála 1,3% áætlunarinnar og 0,34% er eyrnamerkt bruna- og almannavörnum.
Nú tel ég víst að einhverjir ranghvolfi augunum yfir þessum snemm-miðaldra antisportista sem skilur ekki mikilvægi íþróttamannvirkja. En skortur minn á keppnisskapi á áhorfendapöllum þýðir ekki að ég sé með öllu áhugalaus um íþróttastarf. Ég á til að mynda börn sem stunda íþróttir af kappi og veit mætavel hversu mikilvægt öflugt íþróttastarf og aðgengi að því er samfélaginu, ekki síst börnum og ungu fólki. Ég ber mikla virðingu fyrir hugsjónum þeirra sem standa að íþróttastarfi og öllu því öflugu sjálfboðaliða- og grasrótarstarfi sem fer fram í bænum.
En má halda með öllum?
Ég held með íþróttalífi á Akureyri. Það rúmast að miklu leyti innan tveggja stærstu íþróttafélaganna, en einnig hjá skautafélaginu, sundfélaginu, skíðafélaginu og skákfélaginu. Ég held með skátastarfi, tónlistarnámi og menningarlífi, vel viðhöldnum útilistaverkum, metnaðarfullum uppsetningu á klassískum verkum og hugvekjandi gjörningahátíðum. Ég held með grunnskólum, leikskólum, almennings- samgöngum og -sundlaugum, skammtímavistun fyrir fötluð börn, vernduðum vinnustöðum og félagsmiðstöðvum. Ég held með almannavörnum, Lystigarðinum og gróðrarstöðinni.
Mest af öllu held ég með sanngjarnri ráðstöfun úr sameiginlegum sjóðum og samnýtingu innviða þegar það á við. Ég átta mig á því að það er ekki hægt að gera allt fyrir alla í einu. En þegar við setjum gríðarstór uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga í forgang ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil, ýtum við óhjákvæmilega öðrum verkefnum aftar í röðina – eða hreinlega út af borðinu. Í Mílanó á Ítalíu hafa erkifjendurnir AC Milan og Inter Milan deilt heimavelli í áratugi. Tvö sjálfstæð knattspyrnufélög með ríka sögu sem deila keppnisvelli án þess að það dragi úr sérstöðu þeirra eða sjálfsmynd.
Ég játa að ég á erfitt með að skilja að slík samnýting geti ekki gengið í 20.000 manna samfélagi á Íslandi.
Kristín Helga Schiöth fulltrúi Samfylkingar í Umhverfis- og mannvirkjaráði