Góð gjöf til Stórutjarnarskóla

Á myndinni má sjá Úllu Árdal formann afhenda Ingu Sigrúnu Atladóttur skólastjóra gjöfina    Mynd  UM…
Á myndinni má sjá Úllu Árdal formann afhenda Ingu Sigrúnu Atladóttur skólastjóra gjöfina Mynd UMF Bjarmi

UMF Bjarmi í Fnjóskadal hefur afhent Stórutjarnaskóla að gjöf tvö píluspjöld af fullkomnustu gerð ásamt nauðsynlegum fylgibúnaði í tilefni af 55 ára afmæli skólans þann 9. nóvember nk. 

Með nýju aðstöðunni fá krakkarnir tækifæri til að kynnast pílukasti og njóta þessarar ört vaxandi íþróttar. Pílukast reynir meðal annars á einbeitingu, nákvæmni og þolinmæði og hentar öllum aldri.

Á samfélagsmiðlasíðu Bjarma segir ,,Við vonumst til að aðstaðan nýtist vel, bæði nemendum skólans og öðrum hópum sem sækja starf í Stórutjarnaskóla svo sem eldri borgurum. Gjöfin er að andvirði tæplega 600 þúsund króna og ásamt því að safna fyrir henni fengum við styrk frá Íþrótta- og æskulýðssjóði."

Nýjast