Líf og fjör í Grímsey

Í ati eru menn ekki að stilla sér upp fyrir myndasmið        Mynd Birkir Yngva
Í ati eru menn ekki að stilla sér upp fyrir myndasmið Mynd Birkir Yngva

Það hefur verið talsvert líf á bryggjunni í Grímsey undanfarið, en nokkrir bátar eru gerðir þaðan út um þessar mundir. Veiði hefur verið ljómandi góð og bátarnir að koma að landi með flottan ufsa, en verð fyrir hann hefur verið í hæstu hæðum.

Hér eru þeir Henning Henningsson og Gabríel Sigurðsson á fullu við að ganga frá aflanum. Þeir gera út á bátnum Birni EA og voru að gera allt klárt áður en aflanum var komið fyrir um borð í Sæfara sem flutti hann í landi.

Það var enginn tími til að líta upp og brosa til ljósmyndar sem var á ferð með myndavélina, en hann starfar á ferjunni Sæfara. 

Nýjast