Sveitarfélög og OH halda gjaldskrám í skefjum

Kröfluvirkjun
Kröfluvirkjun

Sveitarfélögin á félagssvæði Framsýnar og Orkuveita Húsavíkur hafa lýst yfir stuðningi við markmið verkalýðshreyfingarinnar um að halda verðhækkunum í lágmarki.

Þingeyjarsveit, Norðurþing og Orkuveita Húsavíkur hyggjast standa vörð um hóflegar gjaldskrár til að stuðla að lægri verðbólgu og tryggja forsendur gildandi kjarasamninga.

Stjórn Orkuveitu Húsavíkur hefur þegar samþykkt að hækka gjaldskrá félagsins um 2,5% frá 1. janúar 2027. Verkalýðshreyfingin hefur lagt áherslu á að sveitarfélög hækki gjaldskrár ekki umfram 2,5% svo forsendur kjarasamninga haldi út samningstímann, en samningarnir renna út í lok næsta árs.

Framsýn fagnar afstöðu sveitarfélaganna og Orkuveitu Húsavíkur og telur mikilvægt að stjórnvöld, sveitarfélög, fyrirtæki og verkalýðshreyfingin vinni saman að því að ná niður verðbólgu og háum húsnæðisvöxtum til hagsbóta fyrir heimili landsins.

Nýjast