Í þá gömlu góðu daga þegar ég lék knattspyrnu, knattspyrna heitir víst fótbolti í dag sem er hið besta mál, skiptir mig engu máli hvað hann heitir, aðallega að þetta sé skemmtilegt.
Margt var gert hér á árum áður til verða betri knattspyrnumaður. Ég er ekki vafa að æfingar nútímans séu ekki ósvipðar og í gamla daga. Ýmsar knattþrautir, stuttir sprettir, skotæfingar, styrktaræfingar, teygjur og langhlaup svo eitthvað sé nefnt. Mikið agalega hafði ég gaman af þessu öllu nema kannski teygjum og langhlaupum. Ég tek ofan fyrir fólki sem stundar langhlaup og finnst framlag þeirra til íþrótta vera frábært.
Ég get ekki sleppt að minnast á bakgarðshlaupin sem eru að tröllríða öllu núna og setja ný viðmið í því sem ég kalla langhlaup. Þarna eru fyrst og fremst að mínu mati, vel þjálfaðir einstaklingar sem láta reyna á andlegu og líkamlegu hliðina til hins ítrasta.
En aftur að langhlaupum í gamla daga, þau voru sko alls ekki minn tebolli en ég lét mig hafa það, yfir dimmustu mánuði ársins, að hlaupa í hinum ýmsu veðrum til þess að komast í gott líkamlegt form til þess eins að geta stundað knattspyrnu á sumrin. Í minningunni man ég sérstaklega eftir einu undirbúningstímabili þar sem langhlaup voru stunduð all hressilega og í of miklu magni að mati okkar leikmanna.
En í sjálfu sér kom þetta okkur ekkert á óvart, þar sem þjálfarinn var bæði lipur með boltann og þindarlaus. Við litum svo sannarlega upp til hans. Langhlaup voru að hans mati uppistaðan í öllum íþróttum. Hans versti kostur var sá að hann hljóp alltaf með okkur, dag eftir dag beið hann fyrir utan íþróttahúsið og þegar allir voru klárir þá sagði hann “eltið mig “og hljóp af stað út í óvissuna. Þessi langhlaup voru svo sannarlega óvissuferðir.
Einn dag sem oftar beið hann eftir okkur fyrir utan íþróttahúsið og í þann mund sem gall upp úr honum”eltið mig” þá missti einn leikmaður út úr sér, fyrirgefðu eigum við taka vegabréfin með?
