Akureyri Nálar fundust í Hrekkjavökusælgæti Uppfært Misheppnað grín!

Lögreglustöðin á Akureyri
Lögreglustöðin á Akureyri

Lögreglan á Akureyri sendi frá sér eftirfrandi tilkynninu fyrir skömmu:

Okkur var að berast tilkynning um aðskotahlut sem fannst í sælgæti sem dreift var í gærkvöldi vegna Hrekkjavöku. Um er að ræða nálar sem var stungið inn í nokkur Þrist og Milky Way súkkulaðistykki.

Við biðjum foreldra um að yfirfara það sælgæti sem börn þeirra fengu í gær og gæta varúðar. Ef einhverjir vita um samskonar tilvik hvetjum við viðkomandi til þess að tilkynna það til lögreglu, í gegnum netfang nordurland.eystra@logreglan.is.

Okkur hafa einungis borist ein slík tilkynning að svo stöddu

UPPFÆRT:

Nýjar upplýsingar bárust vegna þessa máls. Um misheppnaðan hrekk innan lokaðs hóps var að ræða. Ekki er neinn grunur um að sælgæti með aðskotahlut hafi verið dreift utan hans. 

Nýjast