Vart hefur verið við talsverðan músagang í Hrísey en Ólafur Pálmi Agnarsson hjá Meindýravörnum Norðurlands telur líklegt að stofn músa hafi verið að byggjast upp í eynni um nokkurra ára skeið án þess að fólk tæki eftir hvert umfangið er fyrr en nú nýlega.
Ólafur Pálmi, sem nýverið skrifaði undir tveggja ára þjónustusamning um meindýravarnir fyrir Akureyrarbæ. Samningurinn var undirritaður 1. október síðastliðinn og gildir til tveggja ára.
Hann býr á Dalvík en sinnir stóru starfssvæði á Norðurlandi, frá Blönduósi og austur til Húsavíkur. Hann var kallaður út til Hríseyjar í síðustu viku eftir að íbúar fóru í auknum mæli að verða varir við mýs. „Ég setti upp tíu gildrur og á einum sólarhring kom mús í hverja einustu þeirra. Það segir sína sögu um fjöldann,“ segir hann.
Mýsnar nægjusamari
Árið 1993 var ráðist í skipulagt átak gegn rottum í Hrísey og tókst þá að útrýma þeim á einu sumri. Árni Logi Sigurbjörnsson meindýraeyðir sá um það átak. Ólafur Pálmi segir aðstæður nú allt aðrar þar sem mýs og rottur hafi ólíkar þarfir.
„Rottur þurfa allt annað fæði. Þær sækja í kjöt og fjölbreyttari fæðu, en mýs geta lifað góðu lífi á fræjum, grasi, hvönnum, kerfli og öðru sem náttúran býður upp á. Þær fara heldur ekki langt frá holunum sínum til að afla sér matar.“
Féllu fyrir romminu
Hann rifjar upp að Árni Logi sem stýrði aðgerðunum gegn rottunum fyrir rúmum þremur áratugum hafi sett út hrossahakk hér og þar um eyna og bætt við það ýmsum bragðefnum. Í ljós kom að rottunum líkað best við bragð af rommi og amarettó. „Rommbragðið var fyrir valinu með góðum árangri. En líklega er rétt að taka fram að í hrossahakkið voru settir bökunardropar með rommbragði. Kostnaður hefði sennilegar farið úr böndunum ef alvöru romm hefði verið hellt yfir hakkið,“ segir Ólafur.

Ólafur Pálmi Agnarsson hjá Meindýravörnum Norðurlands
Gætu hafa komið með flutningum
Að mati Ólafs Pálma er líklegt að mýsnar hafi borist til eyjarinnar með vöruflutningum og þá án þess að eftir þeim væri tekið í fyrstu.
„Það eru miklir flutningar til og frá eyjunni. Einhvern tímann hafa þær líklega slæðst með farmi og náð að koma sér fyrir. Miðað við þann fjölda sem við sjáum núna tel ég ólíklegt að þetta hafi byrjað í sumar. Þetta hefur líklega verið að byggjast upp í nokkur ár.“
Hann nefnir að í sumar sem leið hafi unglingur í vinnuskóla sagst hafa séð mús, en fáir talið það líklegt á þeim tíma. Nú sé hins vegar enginn vafi lengur.
Holur hafa sést víða um eyjuna
Fólk hefur orðið vart við holur í jörðu og séð mýs á ferð sinni um eyjuna, meðal annars þegar það er í gönguferðum eða í í berjamó.
„Fólk hefur lýst holum sem eru á stærð við kústsköft og það er einmitt dæmigert fyrir músaholur. Miðað við það tel ég að stofninn hafi verið til staðar í nokkurn tíma.“
Að hans mati er líklegt að mýsnar séu dreifðar um alla eyjuna. Sérstaklega nefnir hann svæði nær Ystabæ, þar sem lítið er um mannaferðir. „Þar er skjól, skógur og runnar. Raunar geta þær lifað góðu lífi víða um eyjuna allt árið um kring.“
Áhersla lögð á að verja byggðina
Ólafur Pálmi fer aftur til Hríseyjar nú í dag, fimmtudag til að fjölga gildrum og setja út frekari varnir við hús í eigu sveitarfélagsins, svo sem skóla, sundlaug og íþróttahús.
„Meginmarkmiðið núna er að halda músunum frá íbúðabyggðinni. Það skiptir mestu máli. Þótt þær haldi sig úti í náttúrunni er miklu verra ef þær sækja inn í hús eða þéttbýlið.“
Hann notar bæði fellugildrur og beitukassa og segir mikilvægt að halda eitri stöðugt í gildrunum. „Menn mega ekki gleyma að fylla á kassana. Það skiptir mestu máli að varnirnar séu virkar allt árið.“
Mýs erfiðari viðureignar en rottur
Að sögn Ólafs Pálma getur reynst erfiðara að uppræta mýs en rottur.
„Þær eru smærri, fela sig betur og eru mun nægjusamari. Rottur eru aftur á móti ágengari og geta valdið meiri skaða. Þegar rotturnar voru í Hrísey drápu þær andarunga sér til matar.“
Samhliða störfum sínum í Hrísey er hann nú að hefja yfirferð á stöðunni á Akureyri, en samkvæmt samningi á að kanna stöðuna um vor og haust. Hann segir talsverðan músagang vera í bænum og þá séu rottur líka alltaf á ákveðum svæðum. Helst í kringum holræsakerfið og þar sem elstu lagnir eru. Nefnir í því sambandi meðal annar í Hlíðar og Holtahverfi. „Ég fer af stað núna í nóvember og kanna stöðuna m.a. á brunnum hér og hvar.“
Magnaður músagangur 1650
Árið 1650 varð svo magnaður músagangur í Hrísey að það horfði til landauðnar í eynni. Þetta sama ár kom hópur Hollendinga til Hríseyjar og hófu þaðan útgerð. Töldu menn að mýsnar hefðu komið með þeim og hafi þær leynst í föggum þeirra og borist á land í eynni.
Nú var fenginn til aðstoðar við þennan ófögnuð, galdramaður að nafni, Þorvaldur Rögnvaldsson frá Sauðanesi á Upsaströnd við Eyjafjörð. Þegar hann kom til eyjarinnar, lét hann grafa stóra holu nyrst á Hrísey. Hann fékk sér síðan skammrif eitt mikið af sauð og dró það á eftir sér um eyjuna og allar mýsnar í eynni fylgdu á eftir. Kastaði hann nú skammrifinu ofan í holuna og allar mýsnar stukku þar niður. Var nú í snarhasti mokað ofan í þessa miklu holu þannig að nokkuð stór hóll var þarna orðinn á staðnum, hefur hann síðan verið nefndur Músarhóll. Vottar enn vel fyrir honum.
Eftir þetta hefur engin mús sést í Hrísey segir sagan. Fyrr en nú.