Vildi gleðja aðra krakka og gaf nýtt sjónvarp á barnastofuna

Páll Orri Jóhannsson ásamt foreldrum sínum, Elsu og Jóhann
Páll Orri Jóhannsson ásamt foreldrum sínum, Elsu og Jóhann

Barnastofa bráðamóttökunnar fékk nýverið höfðinglega gjöf þegar Páll Orri Jóhannsson færði henni 50 tommu snjallsjónvarp.

Páll Orri hafði áður verið sjúklingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þegar hann dvaldi á barnastofunni fannst honum sjónvarpið þar ekki uppfylla alveg þær kröfur sem gera má til afþreyingar fyrir krakka, eða eins og hann orðaði það sjálfur, „alveg glatað“. Hann ákvað því að gera eitthvað í málinu og mætti á bráðamóttökuna með nýtt 50 tommu snjallsjónvarp handa barnastofunni.

Nýja sjónvarpið er hægt að tengja við síma og spila efni beint á skjáinn. Það mun án efa nýtast þeim börnum sem dvelja á barnastofunni og gera þeim auðveldara að stytta sér stundir.

Starfsfólk bráðamóttökunnar þakkar Páli Orra kærlega fyrir rausnarlega gjöfina og þann hlýhug sem hún ber vitni um.

Frá þessu segir á heimasíðu SAk. 

 

Nýjast