Hafdís Alma Einarsdóttir, heimilislæknir hjá HSN á Akureyri, kann vel við fjölbreytileika og krefjandi verkefni. Í vinnunni sinnir hún fólki og fjölskyldum en í frítímanum sest hún undir stýri á svartri 1980 Corvette og keppir í spyrnu. Í sumar varð hún bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari í sínum flokki.
Hafdís er fædd og uppalin á Akureyri, svo nálægt heilsugæslunni að hún sér æskuheimilið út um gluggann. Læknisdraumurinn kviknaði þegar hún fór fjögurra ára með móður sinni í mæðravernd. „Inn kom læknir og ég man svo sterkt að ég hugsaði að þetta langaði mig að gera þegar ég yrði stór.“
Læknadraumurinn varð að veruleika
Undir lok menntaskólans gerði skólaleiðinn vart við sig og hún sá ekki fram á að fara beint í læknisfræði. Hún mætti engu að síður í inntökuprófið í læknisfræði, lítið undirbúin og með óvenjulegt hugarfar. „Ég ætlaði eiginlega bara að sýna ömmu og afa að ég hefði allavega reynt að komast inn en hafði sjálf enga trú á því að það gengi eftir. En svo flaug ég í gegn og þá var ekkert aftur snúið.“
Sumarstarf hjá HSN eftir fimmta námsárið réð miklu um sérnámsvalið. Hún lenti í allskonar ævintýrum á vöktum þetta sumar. „Þetta sumar tók úr mér skrekkinn, ég ákvað að fara í sérnám í heimilislækningum eftir grunnnámið og kandídatsárið og fékk svo sérfræðileyfið í heimilislækningum árið 2023. Fjölbreytileikinn í starfinu og yfirsýnin sem maður öðlast sem heimilislæknir fólks heillar mig. Blandan af vöktum og stofuvinnu hentar mér mjög vel, en skemmtilegast er samt mannlegi þátturinn, að kynnast fjölskyldum, jafnvel mörgum kynslóðum innan sömu fjölskyldu og fylgja þeim eftir.“

Lyktin af glænýjum dekkjum vandræðalega góð
Bíladellan á líka rætur úr æsku. Foreldrar Hafdísar áttu dekkjaverkstæði og pabbi hennar keppti í torfæru. Sjálf undi hún sér sem lítil stelpa við að flokka skrúfur, rær og bolta og sumrin snerust um ferðir á torfærukeppnir. „Ég hafði engan brjálæðislegan bílaáhuga sem barn en þetta var bara lífið og ég bara komst ekki hjá þessu. Enn þann dag í dag finnst mér lyktin af glænýjum dekkjum vandræðalega góð.“
Hafdís fékk meiri áhuga á bílum eftir að hún fékk bílpróf og átján ára keppti hún fyrst í götuspyrnu á Corvettu pabba síns. Hún hafði afnot af þeirri Corvettu um tíma á menntaskólaárunum og vann m.a. við þrif til að fjármagna bensínkostnaðinn. "Ég var skúringakonan sem mætti á Corvettu heim til Jóhannesar í Bónus til að þrífa. Við grínuðumst með það að ég væri á flottari bíl en hann“ segir Hafdís og hlær.
Síðan tók nám og fjölskyldulíf við en í fæðingarorlofi með eldri dótturina bauðst henni hins vegar að kaupa draumabílinn sinn, 1980 Corvettu. Þetta var boð sem hún gat ekki hafnað. „Ég var skítblönk, á miðju kandídatsári og með lítið barn. Þetta var ekki beint skynsamlegt en ég samdi um að borga bílinn á raðgreiðslum eftir orlofið og er mjög glöð með þessi kaup.
Corvettan var fyrir löngu orðinn fornbíll og átti aldrei að verða spyrnubíll en þegar sérfræðileyfið í heimilislækningum nálgaðist fékk hún óvenjulega útskriftargjöf frá pabba sínum, nýja vél í Corvettuna.
Hafdís hóf keppni á Corvettunni sinni síðsumars 2022 og komst fljótt að því að aukið vélarafl kallaði á fleira en að stíga á bensíngjöfina. Aflið var heldur mikið fyrir hjólabúnaðinn og bilanir voru tíðar, á fjórum af sex keppnum fór bíllinn heim á kerru. „Bíladellan er oft eintómt bras en þá er extra gaman þegar vel gengur.“

Konur og karlar keppa á sömu forsendum
Árangurinn í sumar er til vitnis um velgengni Hafdísar. Fyrir utan að vera Íslandsmeistari í áttungsmílu og bikarmeistari að auki í sínum flokki í ár, var hún kjörin akstursíþróttakona Bílaklúbbs Akureyrar. Þá er hún tilnefnd til sama titils hjá Akstursíþróttasambandi Íslands, en kjör fer fram 31. október nk. „Þetta er að sjálfsögðu mikill heiður í alla staði. En mér finnst ekki þurfa að kynjaskipta þessum titlum. Við erum ekki að keppa í kynjaskiptum flokkum í þessari íþrótt, ég keppi aðallega við karla þó ég vildi gjarnan hafa konurnar enn fleiri. Við keppum öll á sömu jöfnu forsendunum.“
Hún leggur áherslu á að akstursíþróttir séu fyrir alla og eigi heima við öruggar keppnisaðstæður og alls ekki á götum bæjarins. „Mig langar að breyta ímyndinni sem fólk hefur af bílaáhugafólki. Við sem stundum þessar akstursíþróttir erum ekki einhverjir vitleysingar að spóla á götum bæjarins, heldur stundum við þetta í öruggum aðstæðum."
Eina prjónið verður á spyrnubíl
„Margir eru hissa á að ég sé í þessu. Ég, þessi rólega, skynsama og yfirvegaða kona. Ég lít ekki á mig sem neinn spennufíkil, fer ekki einu sinni í rússíbana. En á ráslínunni finnst mér ég hafa stjórn og þá hverfur stressið.“ Eiginmaður Hafdísar, Sigursteinn Sigursteinsson er einnig margfaldur meistari í spyrnu. Þau eiga tvær dætur sem hafa sínar hugmyndir um sportið „Yngri stelpan mín var nú sannfærð um það á tímabili að pabbar kynnu ekkert að keyra hratt, bara mömmur.“
Hafdís sér ekki fyrir sér að bíladellan víki fyrir golfi eða prjónum. "Nema þá kannski að prjóna á spyrnubíl. Ég verð allavega gömul kona að keppa á Corvettu eða rúnta um á 59 Impölu, það er næsti draumabíll". Bílaviðgerðirnar lætur hún þó öðrum eftir. "Ég er með heilan her á bak við mig í það, pabbi og hans aðstoðarmenn eru þar í aðalhlutverki og svo stendur eiginmaðurinn, fjölskyldan og vinir mínir þétt við bakið á mér í þessu. Ég er bara eins og atvinnumennirnir út í heimi, mæti bara í keppnir og keyri. Kem ekki nálægt viðgerðunum en læt mér nægja að bilanagreina mannslíkamann svona dagsdaglega."
