Bekkur til minningar um Þorvald Þorsteinsson

Þorvaldur Þorsteinsson          Mynd Aðsend
Þorvaldur Þorsteinsson Mynd Aðsend

Skólasystkini hins fjölhæfa listamanns og mannvinar Þorvaldar Þorsteinssonar hafa komið fyrir granítbekk á Hamarkotstúni honum til minningar, skammt frá bernskuheimili hans við Hamarsstíg. Bekkurinn verður afhjúpaður á afmælisdegi hans næstkomandi laugardag, 7. nóvember klukkan 14.

Sindri Kristjánsson bæjarfulltrúi og séra Svavar Alfreð Jónsson flytja ávörp, Urður Bergsdóttir les úr Ósómaljóðum, Stefnir Ægir Stefánsson syngur lagið Lengi má manninn reyna og skólasystkini Þorvaldar afhjúpa bekkinn.

Öll eru hjartanlega velkomin. Þorvaldur Þorsteinsson var einstakur og fjölhæfur listamaður sem fór sínar eigin leiðir í sköpun sinni.

Í verkum hans gat hið hversdagslega orðið ævintýralegt og hið fáránlega öðlast óvænta merkingu.

Nýjast