Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna ganga í hús og verða á ferðinni dagana 4.–8. nóvember með Neyðarkallinn til sölu. Með kaupum á kallinum getur almenningur stutt við mikilvægt björgunar- og slysavarnastarf.
Í ár eru 20 ár liðin frá því að fjáröflunarátak björgunarsveitanna, Neyðarkallinn, hófst. Frá árinu 2006 hefur almenningur stutt dyggilega við bakið á sjálfboðaliðum með kaupum á Neyðarkallinum og þannig lagt sitt af mörkum til öryggis landsmanna.
Átakið er ein mikilvægasta fjáröflun björgunarsveita og slysavarnadeilda. Allur ágóði af sölunni rennur til starfseminnar og er meðal annars nýttur til kaupa á nauðsynlegum búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu sveitanna.
Björgunarsveitirnar gegna mikilvægu hlutverki þegar hættuástand skapast og neyðarkall berst. Sjálfboðaliðar eru þá tilbúnir að leggja af stað, oft við krefjandi aðstæður, með reynslu sína, þekkingu og búnað að vopni.
Stuðningur almennings er því mikilvægur þáttur í því að sveitirnar geti sinnt þessu hlutverki og verið tilbúnar þegar á þarf að halda.
Neyðarkallinn til sölu dagana 4.–8. nóvember
Átakið stendur yfir dagana 4.–8. nóvember og verða sjálfboðaliðar björgunarsveitanna á ferðinni við sölu Neyðarkallsins. Einnig verður hægt að nálgast hann í helstu verslunarkjörnum landsins.
Aðstandendur átaksins hvetja fólk til að taka vel á móti sjálfboðaliðunum og leggja þannig sitt af mörkum til að efla öryggi og björgunarstarf í samfélaginu.
