Í kosningunum í vor fundum við skýrt fyrir ákalli um að stíga fleiri skref í átt að samþættingu þjónustu við eldra fólk. Það ákall kom bæði frá eldra fólki og aðstandendum þess, en líka frá frábæru starfsfólki ólíkra stofnana sem vinnur daglega að þjónustunni og þekkir vel hvar tækifærin liggja.
Þegar samhæfingu skortir getur það skapað óþarfa flækjustig fyrir notendur, aðstandendur og starfsfólk. Þessu viljum við breyta og þess vegna rataði samþætting þjónustu við eldra fólk inn í málefnasamning meirihluta Framsóknar, L-lista og Sjálfstæðisflokks.
Strax í sumar var ákveðið að hefja vinnu við málið og leita til SSNE og Veltek – Heilbrigðis- og velferðartækniklasa Norðurlands um samstarf. Frá upphafi var horft til þess að verkefnið gæti nýst fleiri sveitarfélögum en Akureyri og bæði SSNE og Veltek tóku vel í þá nálgun.
Nú hefur stjórn SSNE samþykkt að setja fimm milljónir króna í verkefnið „Samþætting þjónustu við eldra fólk á Norðurlandi eystra“ sem áhersluverkefni og fyrir það ber að þakka. Markmiðið er að taka markviss skref í átt að því að samþætta betur þjónustu þvert á stofnanir og bæta þannig aðgengi og gæði þjónustunnar.
Verkefni sem geta skilað raunverulegum breytingum
Í verkefninu verður ekki aðeins unnið að almennri stefnumótun heldur verður farið í afmörkuð verkefni sem þegar hafa verið greind sem vænleg til samþættingar. Þar á meðal verður skoðað hvernig hægt er að samræma betur notkun rafrænna lása í heimahúsum og einfalda ferli milli heimahjúkrunar og stuðningsþjónustu, meðal annars með sameiginlegu umsóknarferli.
Einnig verður skoðað hvernig Memaxi getur nýst til betri upplýsingamiðlunar milli notenda, aðstandenda og þjónustuaðila. Þá verður unnið að betri samhæfingu akstursþjónustu við stuðningsþjónusta, dagþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
Samþætting matarsendinga í heimahúsum er þegar hafin og sú reynsla mun nýtast áfram í verkefninu. Þannig er verið að vinna með mjög hagnýt verkefni sem geta skilað raunverulegum breytingum í daglegri þjónustu við eldra fólk.
Veltek mun stýra verkefninu en að Veltek standa meðal annars Sjúkrahúsið á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri.
Kerfið á að vinna í kringum einstaklinginn
Þetta er mikilvægt fyrsta skref. Samþætting þjónustu er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til þess að gera þjónustuna aðgengilegri og draga úr óþarfa flækjustigi. Eldra fólk og aðstandendur þess eiga ekki að þurfa að finna fyrir mörkum milli stofnana eða velta fyrir sér hvert eigi að leita næst.
Kerfið á, eins og kostur er, að vinna saman í kringum einstaklinginn. Með góðu samstarfi sveitarfélaga, heilbrigðisþjónustu og annarra þjónustuveitenda getum við vonandi með þessu verkefni tekið mikilvæg skref í þá átt á Akureyri og Norðurlandi eystra öllu.
Guðbjörg Anna Björnsdóttir formaður velferðarráðs og varabæjarfulltrúi Framsóknar