Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur frestað afgreiðslu á fyrirspurn frá fyrirtækinu SS Byggis ehf. um kaup eða úthlutun á landi til stækkunar á frístundabyggðinni Hálöndum í Hlíðarfjalli. Meirihluti ráðsins vísar til þess að svæðið sé hluti af Græna treflinum, þar sem trjáplöntum hefur verið plantað undanfarin ár. Afgreiðslu er frestað þar til umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs liggur fyrir auk þess sem samráð á að hafa við Norðurorku.
SS Byggir ehf sendi Akureyrarbæ erindi þar sem óskað er eftir formlegum viðræðum um kaup eða úthlutun á landsvæði norðan við núverandi frístundabyggð í Hálöndum. Fyrirtækið vill tvöfalda svæðið til að rúma sambærilegt byggingarmagn og nú er, en 98 hús af 113 mögulegum eru þegar risin á svæðinu ásamt tveimur hótelskálum.
Mikil fjárfesting í innviðum
Í erindi SS Byggis kemur fram að fyrirtækið hafi þegar fjárfest verulega í gatnagerð og innviðum á svæðinu og þekkir staðhætti vel. Einnig er bent á að aukið framboð af frístundahúsum og gistirýmum í Hálöndum gæti dregið úr skammtímaleigu á íbúðarhúsnæði í þéttbýlinu og þannig auðveldað fjölskyldum að finna húsnæði til fastrar búsetu.
Loks er bent á að nálægð við Hlíðarfjall, hjólabrautir, gönguleiðir og önnur útivistarsvæði styrki Akureyri sem áfangastað allan ársins hring. Akureyrarbær fengi einnig tekjur af sölu á landi. SS Byggir leggur áherslu á að stækkunin verði unnin í áföngum og í þéttu samráði við bæinn um skipulag og kostnaðarskiptingu innviða.

Óþarfi að tefja málið
Þórhallur Jónsson, A lista vildi á fundi skipulagsráðs ganga strax til samninga um stækkunina. Hann taldi óþarft að tefja málið með því að vísa því umhverfis- og mannvirkjaráðs og bendir á að viðsemjandi geti fært trjágróðurinn í Græna treflinum eða plantað nýjum. Þá lagði hann áherslu á að uppbyggingin færi með sér töluverða hagkvæmni fyrir bæinn.
Opið útboð nauðsynlegt
Sindri S. Kristjánsson, S-lista taldi aftur á móti nauðsynlegt að efna til opins útboðs- eða söluferli ef ráðist verður í úthlutun á bæjarlandinu. Hann bendir á að úthlutun verðmæta án auglýsingar eigi aðeins við í algjörum undantekningartilvikum, sem ekki séu fyrir hendi hér.