Flestir nemendur dagskóla Verkmenntaskólans á Akureyri koma af svæðinu. Um 58% nemenda skólans eru með lögheimili á Akureyri og hækkar hlutfallið í 77% þegar litið er til Eyjafjarðar alls.
Bróðurpartur nemenda kemur því úr nærumhverfinu, en 23% nemenda koma af öðrum svæðum landsins, sem er í takti við þróun undanfarinna ára.
Á vef Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) hafa verið birtar nýjar tölulegar upplýsingar Jóhannesar Árnasonar kennara um nemendur skólans á haustönn 2026.
Karlar eru í meirihluta eða 65,8% nemenda á haustönn 2026. Konur eru 33,8% og kynsegin nemendur 0,4%. Kynjahlutfallið hefur haldist svipað gegnum árin, þótt dæmi séu um frávik