Fyrstu jólatrén farin út í bæ

Þau gleðja óneitanlega augu fólks fallega skreytt  og komin á áfangastað við JMJ Myndir  Ingólfur/Jó…
Þau gleðja óneitanlega augu fólks fallega skreytt og komin á áfangastað við JMJ Myndir Ingólfur/Jón

Aðventuundirbúningur er kominn á fullan skrið í Kjarnaskógi og eru fyrstu lifandi jólatrén þegar farin að birtast í verslunum bæjarins, en lögð er áhersla á að bjóða aðeins upp á raunveruleg tré af heimamarkaði að sögn Ingólfs Jóhannssonar framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Sigurður Ormsson á ferðinni með fyrstu jólatrén

Fyrstu tré voru höggvin í október og þeir bændur sem rækta jólatré eru sumir hverjir komnir með fyrsta skammtinn. JMJ-menn voru i Kjarnaskógi á mánudag að velja tré og eru byrjað að gera og græja í kringum verslunina. „Kaupmenn og húsfélög í miðbænum eru sömuleiðis farin að spýta í lófa fyrir Jólaþorpið og búist er við að allt verði komið á fullan snúning fyrir næstu helgi,“ segir Ingólfur.

 

Jón M. Ragnarsson, Nonni í JMJ að skreyta rauðgreni sem prýða mun þakskeggið á versluninn

Sala jólatrjáa hefst að venju í byrjun desember í Kjarnaskógi og einnig verður fólki boðið upp á að höggva eigin jólatré í Laugalandsskógi fyrir jólin.

Nýjast