Um 90 manns mættu á stofnfund samtakanna Björgum Kristnesi á Hælinu laugardaginn 1. nóvember, á 99 ára afmæli spítalans. „Það er ljóst að málefnið snertir marga og viljinn til að standa vörð um Kristnes er mikill,“ segir María Pálsdóttir.
Markmið samtakanna er að tryggja endurbætur á Kristnesspítala og að endurhæfingarstarfsemi haldist á staðnum. Samtökin kalla eftir skýrum svörum stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir spítalann og leggja áherslu á að verja bæði nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og þá sögu, þekkingu og reynslu sem þar hefur verið byggð upp um áratugaskeið.
Til að nýta krafta sína stefna samtökin meðal annars að samstarfi við stjórnvöld og sveitarfélög, virkri umræðu í samfélaginu og fjársöfnun til endurbóta á húsnæðinu.
Á fundinum var Hallgrímur Sigurðsson matreiðslumeistari kjörinn formaður. Með honum í stjórn eru Susanne Neumann hjúkrunarfræðingur, María Pálsdóttir leikkona, Halldór S. Guðmundsson háskólaprófessor og Kristín Thorberg hjúkrunarfræðingur.
Kristnes er ekki bara hús
Lögð er áhersla á að mikil mæting á fundinn sýni hversu miklu máli framtíð spítalans varðar marga. „Kristnes er ekki bara hús. Þar er saga, þekking, reynsla og starfsemi sem skiptir máli fyrir fólk og samfélag. Við ætlum ekki að horfa aðgerðalaus á meðan framtíð þess er í óvissu. Stofnfundurinn var frábær byrjun. Nú tekur við vinnan – og við erum rétt að byrja,“ segir í tilkynningu.