Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki hefur áhyggjur af fjárhagsstöðu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og telur mikilvægt að tryggja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Hann bendir á að sjúkrahúsið stefni í verulegan rekstrarhalla og að fjárheimildir dugi ekki til að standa undir þeirri þjónustu sem því er ætlað að veita. Þetta kemur fram í skrifum hans á Facebook í morgun um stöðu sjúkrahússins og fyrirhugaða fjárveitingu til þess í fjárlögum.
Síðastliðinn miðvikudag komu forsvarsmenn Sjúkrahússins á Akureyri fyrir fjárlaganefnd og fóru yfir þá grafalvarlegu stöðu sem komin er upp í rekstri sjúkrahússins. Fyrr í haust hafði ég óskað eftir því við formann nefndarinnar að við fengjum forsvarsmenn SAk á fund til að ræða stöðuna. Á þeim áratug sem ég hef setið í fjárlaganefnd hef ég aldrei séð rekstrarstöðu sjúkrahússins jafn slæma og nú.
Reksturinn stefnir 2 milljörðum fram úr fjárheimildum
Samkvæmt minnisblaði SAk stefnir í að reksturinn fari 2.046 milljónir króna fram úr fjárheimildum í ár, eða 15,37%. Þar af eru 632,5 milljónir vegna halla frá fyrra ári og um 1,4 milljarðar vegna rekstrar þessa árs. Launakostnaður skýrir um 82% af heildarfrávikinu.
Stöðugildum hefur fjölgað um 12,9% frá árinu 2021. Sjúkrahúsið rekur fjölgunina til styttingar vinnuvikunnar, fyrst hjá vaktavinnufólki og síðan hjá læknum. Þegar ríkið semur um styttingu vinnuvikunnar þarf það að tryggja fjármögnun þeirrar mönnunar sem sólarhringsþjónusta krefst. Álagsmælingar benda jafnframt til þess að fjölga þurfi hjúkrunarfræðingum á legudeildum.
Framleiðni lækna er samkvæmt samanburði SAk sambærileg við það sem gerist á Landspítala og meðallegutími er styttri. Framleiðni sjúkrahússins var yfir áætlun fimm af fyrstu sex mánuðum ársins. Samkvæmt SAk fengust um 150 milljónir króna ekki greiddar úr framleiðslutengdum umbunarpotti fyrir veitta þjónustu. Þá stefnir í að samskipti á göngudeildum fari í fyrsta sinn yfir 100 þúsund í ár.
Launakostnaður við vaktlínu sjúkraflugs er um 175 milljónir króna. Árið 2020 bættust 48 milljónir við rekstrargrunn SAk vegna verkefnisins. Framlagið hefur fylgt launavísitölu en dugar enn ekki fyrir kostnaðinum við læknavaktina.
Í fjárlagafrumvarpi 2027 er gert ráð fyrir 1,6% raunvexti og 1,1% hagræðingarkröfu. Fjárheimildir lækkuðu á föstu verðlagi árið 2026 og samkvæmt samanburði SAk gerir frumvarpið ráð fyrir lægsta fjárfestingarframlagi frá 2014.
Viðvarandi niðurskurður gæti veikt sérhæfða heilbrigðisþjónustu SAk
Sjúkrahúsið á Akureyri er sérgreinasjúkrahús, kennslusjúkrahús og varasjúkrahús Landspítala. Forsvarsmenn þess vara við að niðurskurður geti haft langvarandi áhrif á sérhæfða þjónustu á Norður- og Austurlandi. Þegar sérhæft starfsfólk hverfur tekur tíma að byggja þjónustuna upp á ný.
Við í fjárlaganefnd þurfum að takast á við þessa erfiðu stöðu og tryggja rekstur SAk. Við afgreiðslu fjárlaga þarf að taka á uppsöfnuðum halla og tryggja að rekstrargrunnurinn standi undir þeirri þjónustu sem sjúkrahúsinu er ætlað að veita.