Sláturfé fækkar á milli ára

Fallþyngd var svipuð og í fyrra, 16,79 kg í ár á móti 16,95 kílóum í fyrra
Fallþyngd var svipuð og í fyrra, 16,79 kg í ár á móti 16,95 kílóum í fyrra

Nokkru færra fé var slátrað hjá sláturhúsi Kjarnafæði-Norðlenska á Húsavík á nýliðinni sláturtíð en verið hefur. Sláturtíð lauk um liðna helgi og gekk að vel fyrir sig.

Sigmundur Hreiðarsson framleiðslustjóri segir að í upphafi hafi komið upp smávægilegir örðugleikar við að ná upp fullum vinnudögum, en að lokum gekk allt upp. Það megi þakki góðu samstarfi við bændur, tengiliðum í sveitum og þeim sem hafa með höndum flutning á fénu, sem sýndu mikinn hreyfanleika m.a. við að sníða akstur eftir veðri.

Sigmundur Hreiðarsson framleiðslustjóri hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík

Fallþungi svipaður

Alls var lógað á Húsavík 86.782 gripum, þar af voru 116 geitur. Það er nokkur fækkun á milli ára, en í fyrrahaust var 88.276 gripum var lógað í sláturtíðinni, þar af 99 geitum. . Gerð var 9.05 en var 9.37 í fyrra og fita nú í haust var 6.04 á móti 6.51 í fyrrahaust.

Slysalaust

„Það er ánægjulegt að segja frá því að engin slys urðu á fólk yfir allt tímabilið, ekki einu sinni smáskurðir og það er aldeilis frábært í ljósi þess að mörg störf í sláturhúsum eru áhættusöm,“ segir Sigmundur. „Ég hef sagt það áður og get endurtekið það að hér búum við að mjög hæfu og reynslu miklum kjarna af starfsfólki, árið um kring og svona er ekki keypt út í búð.Ég er bæði stoltur og þakklátur að hafa allt þetta öfluga og góða starfsfólk í kringum mig.“

Nýjast