Hvergi er minnst á forvarnir gegn áfengi og öðrum vímuefnum í nýsamþykktri lýðheilsustefnu bæjarins. Stefán Garðarsson mætti á viðtalstíma bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar og vakti mál á því.
Sagði hann aðgengi að áfengi hafa aukist á opnum svæðum, svo sem í Lystigarðinum, á íþróttasvæðum og í Hlíðarfjalli, sem hefði í för með sér að börn og ungmenni veigruðu sér við að sækja skíðasvæðið vegna sýnilegrar ölvunar þar. Eins gerði hann staðsetningu áfengissölu í Lystigarðinum að umtalsefni, m.a. með tilliti til nálægðar við sjúkrahúsið og geðdeild.
Bæjarfulltrúar svöruðu því til að stefnunni væri ætlað að vera breiður rammi, en sértækar aðgerðir og forvarnir af þessu tagi kæmu inn í gegnum aðgerðaáætlanir einstakra fagsviða.