„Ég er afskaplega þakklát fyrir þessar góðu viðtökur. Þær hafa farið fram úr mínum björtustu vonum, en gefa mér byr undir báða vængi að halda þessu starfi áfram,“ segir Arna María Ævarsdóttir sem vakið hefur athygli fyrir umfangsmikla sultugerð. Hún útbýr sultur í miklu magni, bakar bananabrauð og fleira brauðmeti, en allur varningur er seldur hjá Norðurhjálp og styrkir starfsemi þeirra samtaka. „Ég fann fyrir mikilli löngun til að gefa af mér,“ segir hún en innkoma af sölunni hefur skilað Norðurhjálp tæplega 1,5 milljónum króna. Það fé fer allt í stuðning til þeirra sem höllum fæti standa í samfélaginu. Arna María, er kölluð Adda og hefur komið sér upp vörumerkinu Adda Art.
En hver er þessi öflugi sjálfboðaliði hjá Norðurhjálp? „Ég segi að ég sé frá Blönduósi, þar bjó ég í 26 ár á fullorðinsárum,“ segir hún en á yngri árum var hún mikið á Húsavík og í Aðaldal og kunni einkar vel við sig á þeim slóðum. „Eins og svo margir aðrir flutti ég suður, ég eignaðist barn snemma og það bættist ört í hópinn. Ég á 5 dætur og fór að huga að því að flytja úr borginni og koma mér fyrir á rólegri stað, sem ekki væri of stór og þar sem gott væri að ala upp börn. Blönduós varð fyrir valinu,“ segir Adda.
Alla tíð unnið mikið
Hún kom sér vel fyrir á Blönduósi og var lengst af sínum starfsferli verslunarstjóri hjá Kjörbúðinni þar í bæ. „Ég hef alla mína tíð unnið mikið, er lítið fyrir að gaufa við hlutina,“ segir hún en vinnusemin hitti hana í bakið, hún fór að finna fyrir einkennum kulnunar og fór að huga að breytingum, að taka á ástandinu og jafnvel að koma sér fyrir annars staðar. „Það er komið að því að breyta til og það gerði ég. Flutti til Akureyrar fyrir um 6 árum síðan, en ástæða þess var að ég kynntist manni sem þar bjó, Jóhanni Frey Jónssyni,“ segir hún.
Hún kveðst ekki hafa verið í nægilega góðu standi við flutninginn í höfuðstað Norðurlands, en hafi engu að síður sagt já við starfstilboði sem kom upp í hendur hennar fljótlega eftir að hún færði sig um set. „Mér bauðst vinna sem verslunarstjóri hjá Olís í Varmahlíð og þó ég hafi verið í endurhæfingu vegna kulnunar sagði ég auðvitað já,“ segir hún og ók á milli til að fara í og úr vinnu. „Það var leiðinlegt veður þennan vetur og alls ekki skemmtilegt oft og tíðum að fara yfir Öxnadalsheiðina en ég lét mig hafa það.“ Svo kom að því einn góðan veðurdag að hún fékk nóg. „Ég bara keyrði á vegg eins og sagt er, var búin að vinna yfir mig um langt skeið og þar kom að ég gat ekki meir.“
Lenti í kulnun en fann köllun sem sjálfboðaliði
Undanfarin 6 ár hefur Adda búið með Jóhanni í húsinu númer 7 við Lundargötu, Svartiskóli sem kallaður er. Þau gerðu húsið upp nánast frá grunni og er það hið glæsilegasta. „Það var mikil vinna en við sinntum henni á okkar hraða,“ segir hún. Adda náði sér ekki á ný eftir kulnun og er öryrki, eftir of mikið og langvarandi álag.
Hún finnur góðan tilgang í því að starfa sem sjálfboðaliði hjá Norðurhjálp, þar sem hún tekur á móti varningi og flokkar auk tilfallandi verkefna. Eftir að störfum þar lýkur tekur sultugerðin við.

Adda og eiginmaðurinn Jóhann Freyr Jónsson
„Ég var komin á góðan stað og fann ríka þörf hjá mér að láta gott af mér leiða,“ segir hún um næsta skref í lífssögunni. „Ég byrjaði smátt, fór að baka bananabrauð og kleinur og færa starfsfólkinu á Norðurhjálp. Smám saman vatt þetta upp á sig og hefur aukist jafnt og þétt undanfarið. Ég fann strax mjög góðar viðtökur, fólki líkaði við vörurnar og það gerir að verkum að maður spýtir aðeins í og bætir við. Ég á það til að vera stór í sniðum, gera meira en minna,“ segir hún.
Vildi gefa til baka
Adda á sem áður segir 5 dætur og í allt 19 barnabörn, þannig að ríkidæmið er mikið. Það að hún fór í með bananabrauð í Norðurhjálp í fyrstu segir hún að hafi komið til af því að tvær af dætrum hennar hafa átt við fíknivanda að stríða. Önnur býr á Akureyri og hin syðra. „Dóttir mín sem býr í bænum leitaði til Norðurhjálpar og fékk þar aðstoð þegar syrti í álinn. Kom aldrei að lokuðum dyrum. Fyrir það er ég þakklát og vildi gefa af mér til baka.“ Báðar hafa dæturnar nú náð bata og eru á góðum stað í lífinu og kveðst Adda afar þakklát fyrir það.
Fjölskyldan er með sumarbústað í Lögmannshlíð og þar dvelja þau mikið yfir sumar. „Það eru alls kyns ber í landinu sem ég tíni og nýti í sultugerðina,“ segir hún og kveðst slaka vel á yfir sumarið til að hlaða batteríin fyrir vetrarstarfið.
Adda er fljót að vinna og afkastar miklu á skömmum tíma. Það segir hún skýringu á því hversu mikið magn hún nær að framleiða. Hún er afar glöð yfir að fólki líkar vel við sulturnar og þær seljast vel. Jafnvel eru dæmi um að fólk komi lengra að til að næla sér í sultukrukkur.
Greiningar skýra betur hver ég er
Um þessar mundir eru að koma á markað tvær tegundir með jólaþema, Jólaroði og Hátíðarmarmelaði sem verða á boðstólum næstu vikurnar. „Fyrstu viðtökur lofa góðu,“ segir Adda. Hún er einnig farin að pakka varningi sínum í gjafapakkningar og viðskiptavinir hafa tekið vel við sér enda tilvalið til jóla – og tækifærigjafa.

Sultur í gjafaöskjum njóta vinsælda til tækifærisgjafa ýmis konar
Adda fékk einhverfugreiningu fyrir þremur árum og þá er hún einnig með ADHD. „Það var mikill léttir að fá þessar greiningar. Það skýrir margt betur, af hverju ég er eins og ég er og það er líka gott fyrir fólkið í kringum mig að vita um þetta.“