Húsavík varð efniviður í nýja leiki

Háskóli Íslands, Hraðið, STEM Ísland og Game Makers Iceland, sameinuðu krafta sína til að búa til Le…
Háskóli Íslands, Hraðið, STEM Ísland og Game Makers Iceland, sameinuðu krafta sína til að búa til Leikjadjammið. Myndir/Hraðið.

Að kasta fiskum í hvalsgin, spreyta sig á söguspili og takast á við tölvuleik með eigin söguheimi. Hugmyndaflugið fékk að ráða þegar fimm teymi komu saman á fyrsta leikjadjamminu á Húsavík í september. Stefán Pétur Sólveigarson hjá Hraðinu sér fyrir sér að endurtaka leikinn og byggja á reynslunni.

„Ég býst við að við gerum þetta aftur,“ segir Stefán í samtali við Vikublaðið.

Leikjadjammið fór fram í Hraðinu á Stéttinni fyrr í haust og sameinaði fólk með ólíkan bakgrunn. Meðal þátttakenda voru bæði grunnskólanemar og doktorsnemar og verkefnið var að þróa leiki út frá sameiginlegu þema: hvölum, hafinu og Húsavík.

Að viðburðinum stóðu Háskóli Íslands, Hraðið, STEM Ísland og Game Makers Iceland. Frumkvæðið kom frá Ástu Olgu Magnúsdóttur, sérfræðingi í nýsköpun og samstarfi hjá HÍ, og Huld Hafliðadóttur, stofnanda STEM Húsavíkur og STEM Íslands.

Fiskar í hvalsgin og marglyttuspil

Þátttakendur höfðu tvo daga til að færa hugmyndir sínar yfir í spilanlegar frumgerðir. Þar nýttust meðal annars sagnalist, hönnun, forritun og þekking á nærumhverfinu. Stefán var meðal leiðbeinenda og aðstoðaði hópana í sköpunarferlinu og við nýtingu aðstöðunnar í Fab Lab Húsavík.

Afurðirnar voru fjölbreyttar. Í umfjöllun Háskóla Íslands er sagt frá útileik þar sem kastað var fiskum í hvalsgin, söguspili með orðum tengdum þema viðburðarins og spurningaspili með marglyttum fyrir ólíka aldurshópa. Einnig varð til tölvuleikur sem virtist einfaldur við fyrstu sýn en byggðist á söguheimi sem höfundarnir höfðu mótað á þessum tveimur dögum.

Viðburðinum lauk með því að gestum og gangandi bauðst að prófa leikina.

Reynsla sem nýtist áfram

Stefán telur ýmis tækifæri til að þróa framkvæmdina áfram. Hann nefnir sérstaklega mikilvægi þess að ná beint til væntanlegra þátttakenda, meðal annars með því að fara inn í skóla og kynna hvað standi til boða. Slík nálgun hafi reynst vel við aðra viðburði á vegum Hraðsins.

Hann lítur á fyrstu tilraunina sem reynslu til að byggja á. Viðburðir þróist með tímanum og það sem lærist í eitt skipti geti nýst til að bæta það næsta.

„Maður lærir alltaf eitthvað á því að halda svona viðburði eins og sannast hefur með Krubbinn og Hönnunarþingið,“ segir Stefán og vísar þar til tveggja stórviðburða á sviði hönnunar og nýsköpunar sem hafa vakið mikla athygli um allt land og fest sig í sessi sem árlegir viðburðir; með sívaxandi aðdráttarafl fyrir gesti til að heimsækja Húsavík.

Leikjadjammið tengist norðurslóðaverkefninu InnoGS, sem styður við atvinnu- og byggðaþróun og aukna atvinnumöguleika ungs fólks í dreifbýli. Með viðburðinum var meðal annars kannað hvernig leikjahönnun gæti orðið farvegur fyrir nýsköpun og tengt saman skapandi fólk úr ólíkum áttum.

 

 

Nýjast