Lokaorðið - Takk fyrir mamma og pabbi!

Gulla Gísla átti Lokaorðið s.l. fimmtudag
Gulla Gísla átti Lokaorðið s.l. fimmtudag

Loksins! Fyrsti dagur vetrar er liðinn og ég hlakka til skammdegisins með kertaljósum og heitu súkkulaði. Snjórinn kemur vonandi bráðum og þá verður hægt að fara á skíði. Það minnir mig á hvað ég er heppin að hafa lært á skíði og vert að rifja upp hvað ég er þakklát fyrir í uppeldinu.

  1. Takast á við nýjar áskoranir þó ég sé hrædd vegna þess að ég hef áhyggjur af því að það verði hlegið af mér (eflir sjálfstraustið þó allt misheppnist).
  2. Klára allt sem ég byrja á, þó það sé ekki skemmtilegt (leiðinleg regla en hefur komið sér vel í lífinu).
  3. Vera kurteis og þakka fyrir mig (er bara miklu auðveldara en sumir gætu haldið).
  4. Koma vel fram við alla þó sumir séu öðruvísi eða leiðinlegir (ótrúlega gefandi regla).
  5. Hlusta á aðra og ekki tala út í eitt eða stanslaust um sjálfa mig (erfið og skrítin regla sem ég skil ekki enn).
  6. Að lesa bók er göfugt (auðvelt að vera hlíft við ýmsum heimilisverkum ef bók er í hendi).
  7. Fá að alast upp með dýr á heimilinu (það er þroskandi og gefandi að annast dýrin og þau elska mann skilyrðislaust).
  8. Kunna að syngja og spila á píanó (það gefur manni X-factor geta sungið og spilað).
  9. Smakka allan mat, borða það sem er borið á borð og klára af disknum (má deila um síðasta liðinn, ég vildi bara hafa pláss fyrir eftirmatinn).
  10. Stundvísi (man reyndar ekki eftir að það hafi þótt mikilvægt).

Auðvitað er þetta ótæmandi listi, en best að láta gott heita. Takk mamma og pabbi, ég held að þetta hafi bara lukkast nokkurnveginn.

Nýjast