Þessa dagana stendur yfir ein stærsta fjáröflun Björgunarsveita Landsbjargar, sala Neyðarkallsins.
Samhliða hefðbundinni sölu selja björgunarsveitirnar fyrirtækjum og sveitarfélögum stærri útgáfu af Neyðarkallinum.
Svalbarðsstrandarhreppur ákvað að styrkja Björgunarsveitina Tý landsins með kaupum á Stóran Neyðarkallinum Eyjafjarðarsveit styður jafnframt við starf Hjálparsveitarinnar Dalbjargar með kaupum á Stóra Neyðarkallinum.
Sala Neyðarkallsins er mikilvæg fjáröflun sem nýtist meðal annars til kaupa á björgunarbúnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar slysavarnastarfs. Sveitarfélögin þakka sjálfboðaliðum fyrir ómetanlegt starf í þágu samfélagsins og hvetja íbúa og fyrirtæki til að taka vel á móti hjálparsveitarfólki og styðja við sínar sveitir.
Hægt er að styrkja starfið áfram á landsbjorg.is með því að gerast Bakvörður.