Golfklúbbur Akureyrar (GA) hlaut Sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands (GSÍ) fyrir árið 2026. Verðlaunin voru afhent á formannafundi GSÍ þar sem Bjarni Þórhallsson, formaður GA, og Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri klúbbsins, tóku við viðurkenningunni.
iðurkenningin er fyrir markvisst starf Golfklúbbs Akureyrar við að samþætta umhverfislega ábyrgð, nýsköpun í vallarumhirðu og öflugt félagsstarf.
Meðal þess sem liggur að baki verðlaununum er GEO-sjálfbærnivottun klúbbsins, notkun slátturóbóta við umhirðu vallarins og ábyrg vatnsnotkun. Með þessum aðgerðum hefur GA lagt áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd í starfsemi sinni.
Fjölbreytt starfsemi allt árið
Uppbygging inniaðstöðunnar á Jaðri hefur jafnframt skapað aukin tækifæri til golfiðkunar allt árið um kring. Þar að auki hefur öflugt ungmennastarf og markviss vinna við nýliðun styrkt starf klúbbsins og fjölgað þeim sem stunda golf. Framlag sjálfboðaliða hefur einnig verið mikilvægt í þessari uppbyggingu og átt stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur.
Sjálfbærniverðlaunin eru því ekki aðeins viðurkenning fyrir umhverfisstarf heldur einnig fyrir öflugt og metnaðarfullt starf Golfklúbbs Akureyrar í þágu félagsmanna og golfíþróttarinnar.
Frá þessu segir á samfelagsmiðlum Golfsambands Íslands