Fyrir fólk sem þarf að byggja líf sitt upp að nýju eftir alvarleg veikindi eða slys skiptir endurhæfing gríðarlegu máli. Hún getur ráðið því hvort einstaklingur kemst aftur til vinnu, getur búið heima og tekið þátt í daglegu lífi. Á Kristnesi hefur verið unnið mikilvægt starf í þágu þessa fólks um áratugaskeið. Þess vegna eru áhyggjur heimamanna af framtíð staðarins bæði skiljanlegar og réttmætar.
Um níutíu manns mættu á stofnfund samtakanna Björgum Kristnesi á 99 ára afmæli spítalans. Þar kom saman fólk sem vill leggja sitt af mörkum til að húsið verði gert upp og endurhæfingarstarfsemi haldi áfram á staðnum. Þessi samstaða segir mikið um tengsl samfélagsins við Kristnes og þá trú sem fólk hefur á framtíð þess.
Á meðan stendur húsið autt og beðið er eftir svörum frá ríkisstjórninni. Ætlar ríkið að ráðast í endurbætur svo endurhæfing geti hafist aftur á staðnum? Eða á starfsemin að vera farin þaðan fyrir fullt og allt? Þetta eru grundvallarspurningar sem heimamenn eiga rétt á að fá svör við.
Vilji heimamanna er skýr
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur fundað með okkur þingmönnum um stöðuna og lagt áherslu á að fá niðurstöðu. Á fundum okkar með sveitarstjórnum kjördæmisins hafa þær allar undirstrikað mikilvægi þess að endurhæfing verði áfram í Kristnesi. Málið varðar því mun fleiri en íbúa sveitarfélagsins sjálfs. Það snýst um þjónustu sem hefur haft mikla þýðingu fyrir fólk á Norður- og Austurlandi.
Á Kristnesi hefur byggst upp aðstaða og umhverfi sem heimamenn og velunnarar telja sérstaklega vel fallið til endurhæfingar. Þar er meðal annars sérhönnuð þjálfunarlaug og nálægð við náttúru sem er hluti af sérstöðu staðarins. Þessa kosti þarf að meta af alvöru þegar tekin er ákvörðun um framtíðina.
Húsnæðisvandinn er raunverulegur en raka- og mygluskemmdir kölluðu á flutning starfseminnar og öryggi sjúklinga og starfsfólks verður að vera í fyrirrúmi. En nauðsyn þess að flytja starfsemi úr óheilnæmu húsnæði svarar ekki spurningunni um hvað eigi að taka við til lengri tíma. Sú ákvörðun krefst sjálfstæðs mats og skýrrar pólitískrar ábyrgðar.
Biðin er ekki kostnaðarlaus
Það þarf að leggja fram mat á umfangi endurbóta, kostnaði og mögulegri nýtingu hússins. Sá kostnaður þarf síðan að vera borinn saman við aðra raunhæfa valkosti, þar á meðal húsnæðiskostnað og þá aðstöðu sem þarf til að tryggja þjónustuna annars staðar. Ákvörðunin verður að byggjast á heildarmyndinni og langtímahagsmunum þjónustunnar.
Áframhaldandi óvissa hefur líka afleiðingar. Sveitarfélagið getur ekki skipulagt framtíð svæðisins með eðlilegum hætti á meðan enginn veit hvað ríkið hyggst fyrir. Heimamenn geta ekki endalaust lagt fram hugmyndir og boðið fram krafta sína án þess að fá skýra afstöðu þeirra sem fara með ábyrgðina.
Ríkisstjórnin þarf því að birta forsendur sínar, segja hvaða valkostir eru til skoðunar og tilgreina hvenær ákvörðun verður tekin. Ef endurhæfing á að snúa aftur þarf tímasetta og fjármagnaða áætlun. Viljayfirlýsing ein og sér dugar ekki.
Svör eru ekki samþykki
Mín afstaða er að vinna eigi að því að endurhæfing verði áfram í Kristnesi. Ef ríkisstjórnin ætlar hins vegar að loka á þann möguleika verður hún að segja það berum orðum og rökstyðja niðurstöðuna. Þá væri löngum kafla í sögu endurhæfingar í Kristnesi lokið. Það væri þungbær niðurstaða fyrir endurhæfingu í landinu.
Sveitarstjórnin hefði þá þó að minnsta kosti forsendur til að hefja vinnu við nýtt hlutverk hússins og svæðisins.
Heimamenn hafa sýnt samstöðu, frumkvæði og vilja til samstarfs. Nú þarf ríkisstjórnin að svara. Framtíð Kristness má ekki ráðast af því að tíminn líði þar til enginn raunhæfur valkostur sé eftir.