Icelandair tilkynnir í dag um nýja flugleið í áætlunarflugi frá Akureyri til Tenerife á Kanaríeyjum. Flogið verður einu sinni í viku á þriðjudögum frá 19. október 2027 til 18. apríl 2028.
Með þessu bætist við nýr valkostur fyrir íbúa Norður- og Austurlands, sem geta nú flogið beint til Tenerife án þess að fara um Keflavíkurflugvöll. Tenerife er stærst Kanaríeyja og vinsæll áfangastaður Íslendinga yfir vetrartímann, enda þekkt fyrir gott veðurfar árið um kring.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: „Við erum afar ánægð að bjóða upp á þessa nýju flugleið frá Akureyri til Tenerife í áætlunarflugi. Þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum upp á beint áætlunarflug út í heim frá Akureyri, en áður höfum við boðið upp á leiguflug þaðan. Nú er hægt að fara beint af skíðunum í sólina á Tenerife, án þess að fara fyrst suður. Við vonum að þessari nýjung verði tekið fagnandi.“
Frá þessi segir í tilkynningu frá Icelandair rétt í þessu