Njáll Trausti vill flug frá Akureyri til Kaupmannahafnar

Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Norðausturkjördæmis, segir mikilvægt að koma á reglulegu áætlunarflugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Hann telur slíkt flug geta haft veruleg áhrif á byggðaþróun, atvinnulíf og uppbyggingu heilsársferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi.

Í Facebookfærslu sem lesa má hér fyrir neðan gerir Njáll Trausti grein fyrir vonbrigðum sínum með að Icelandair hafi ákveðið að hefja flug frá Akureyri til Tenerife í stað Kaupmannahafnar.

Hann rifjar jafnframt upp sögu millilandaflugs frá Akureyri til danska höfuðborgarsvæðisins og bendir á að fyrri reynsla af leiðinni hafi verið góð og sætanýting mikil.

 

,,Allt Ísland - allt árið.
Ég verð að segja það upphátt hversu mikið ég hefði óskað mér að Icelandair hefði verið að tilkynna okkur Norðlendingum og Austfirðingum að flugfélagið hygðist hefja flug frá Akureyrarflugvelli til Kaupmannahafnar frekar en Tenerife og þá tvisvar í viku. Það hefði haft miklu meiri áhrif í þá vera að styrkja byggðina fyrir norðan og austan.
Beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á sér lengri sögu en margir gera sér grein fyrir. Air Greenland hóf flug á leiðinni vorið 2003 og flaug tvisvar í viku fram í desember, um átta mánaða skeið. Iceland Express tók síðan upp beint sumarflug árið 2006 og flaug á leiðinni í nokkur sumur, síðast árið 2012.
 
Tíu árum síðar, 2. júní 2022, fór Niceair í sitt fyrsta flug frá Akureyri. Áfangastaðurinn var Kaupmannahöfn. Þar var komið flugfélag með heimahöfn á Akureyri og metnað til að halda úti millilandaflugi árið um kring. Félagið flaug til Kaupmannahafnar þar til það stöðvaði starfsemi sína í apríl 2023.
Allt þetta flug gekk ljómandi vel og sætanýting góð.
 
Air Greenland flugið féll niður vegna óánægja með íbúa á Grænlandi með að flugfarið var lægra frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Málið varð að pólitísku hitamáli á Grænlandi. Heimastjórnin skipti um tvo stjórnarmenn í stjórn Air Greenland. Í framhaldinu felldi stjórnin niður flugið með fjórum atkvæðum gegn þremur í nóvember 2003, fluginu var hætt nokkrum vikum síðar í desember það ár. Forstjórinn Air Greenland og allir fjórir framkvæmdastjórar félagsins vildu halda fluginu áfram, þrátt fyrir það var ákvörðun stjórnarinnar að fella flugleiðina á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar niður.
 
Iceland Express flaug yfir sumarið á árunum 2006 - 2012 á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og gekk það flug vel og nýtingin góð. Við þekkjum það líka að sætanýting Niceair frá Akureyri til Kaupmannahafnar var líka mjög góð.
 
Ég hef lengi talað (skrifað) fyrir því að byggja upp alþjóðaflugvellina á landsbyggðinni upp þannig að hægt væri að nýta þá til millilandaflugs. Sú uppbygging hefur gengið með ágætum á undanförnum árum þó ýmislegt megi telja til sem vinna þarf í til að styrkja millilandaflugið um alþjóðlegu flugvellina tvo í Norðausturkjördæmi.
Það hefur lengi verið mín skoðun að flug til Kaupmannahafnar hefði gríðarlega mikið að segja fyrir íbúa á Norður- og Austurlandi. Fyrir ferðaþjónustuna myndi slíkt flug einnig skipta gríðarlega miklu máli. Slíkt flug gæti verið hlut af ‘‘Stop Over“ markaðskerfi Icelandair sem myndi skapa mikil tækifæri í markaðssetningu, myndi styðja uppbyggingu heilsárs ferðaþjónustu um allt land.
 
Við eigum að halda áfram að vinna að því að koma á reglulegu flugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á ný. Þar höfum við mikla reynslu til að byggja á.
Það hefur verið kallað eftir því um langt árabil að Icelandair flygi á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Það myndi styrkja byggðina á Norður- og Austurlandi mikið. Það hefði líka mikið að segja um það mikla og stóra verkefni sem er að byggja upp heilsársferðaþjónustu á því landsvæði sem stendur fjærst Keflavíkurflugvelli.
 
Allt Ísland - allt árið."

Nýjast