Vinir Hlíðarfjalls og Akureyrarbær Samningur um samstarf framlengdur til 2030

Bæjarráð Akureyrar hefur fyrir sitt leyti samþykkt samstarfssamning við Vini Hlíðarfjalls, samningur…
Bæjarráð Akureyrar hefur fyrir sitt leyti samþykkt samstarfssamning við Vini Hlíðarfjalls, samningurinn gildir til loka ársins 2030

Bæjarráð Akureyrar hefur fyrir sitt leyti samþykkt samstarfssamning við Vini Hlíðarfjalls. Hann gildir til loka ársins 2030. Markmið samningsins er að styðja við frekari uppbyggingu og markaðssetningu Hlíðarfjalls með sölu fyrirtækjapakka til aðildarfyrirtækja.

Áhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu snjóframleiðslukerfis, mótun og lagfæringu skíðaleiða, aukinn öryggisbúnað fyrir yngri skíðaiðkendur og markaðssetningu skíðasvæðisins.

Vinir Hlíðarfjalls munu árlega styrkja verkefni sem falla undir markmið samningsins í samráði við rekstraraðila Hlíðarfjalls og Skíðafélagið. Allt að 30 fyrirtæki geta átt aðild að félaginu.

Aðildarfyrirtæki fá meðal annars fjögur vetrarkort, sérstakan fyrirtækjadag í Hlíðarfjalli og sýnileika á svæðinu og í kynningarefni tengdu starfsemi Vina Hlíðarfjalls.

Samningurinn er liður í áframhaldandi uppbyggingu Hlíðarfjalls og styrkir samstarf sveitarfélagsins og atvinnulífsins um þróun skíðasvæðisins á komandi árum.

Nýjast