Nýsveinar fögnuðu tímamótum í Hofi

Hluti nýsveina með sveinsbréf sín.   Myndir aðsendar
Hluti nýsveina með sveinsbréf sín. Myndir aðsendar

Það var góð stund í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 3. nóvember sl. þegar rúmlega 50 nýsveinar tóku við sveinsbréfum sínum.

Iðan fræðslusetur heldur utan um framkvæmd sveinsprófa í 30 löggiltum iðngreinum og heldur jafnframt utan um afhendingu sveinsbréfa.

Í Hofi voru afhent sveinsbréf í húsasmíði, vélvirkjun, prentsmíði, kjötiðn, hársnyrtiiðn og bifvélavirkjun. Flestir nýsveinanna luku námi í húsasmíði.  Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs, stýrði athöfninni

„Ég óska nýsveinum innilega til hamingju með þennan merkilega áfanga og hvet til að halda stöðugt áfram að bæta við sig þekkingu. Metnaður okkar hjá Iðunni fræðslusetri stendur til þess að styðja fagfólki í iðnaði í því að halda áfram að læra, svo það megi vaxa og dafna í sínu fagi og starfi,“ sagði Vilborg.

Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar

Nýsveinar fengu gjafabréf á námskeið hjá Iðunni fræðslusetri og þau sem sýndu framúrskarandi árangur hlutu jafnframt viðurkenningar frá fagfélögum sínum.

Að athöfn lokinni buðu Iðan, FIT, Byggiðn og FMA nýsveinum og gestum upp á veitingar og þá bauð Iðan upp á myndatöku til að minnast þessa ánægjulega áfanga.

Iðan óskar öllum nýsveinunum innilega til hamingju með áfangann.

Nýjast