Áform MýSköpunar gera ráð fyrir byggingu um 10.000 fermetra sérhæfðrar hátækni-framleiðslustöðvar þar sem notuð verður háþróuð ræktunartækni. Megináhersla verður lögð á framleiðslu náttúrulegs astaxantíns úr örþörungnum Haematococcus pluvialis. Astaxantín er verðmætt náttúrulegt andoxunarefni sem meðal annars er nýtt í fæðubótarefni og snyrtivörur á hratt vaxandi alþjóðlegum mörkuðum.
Staðsetning framleiðslunnar við Þeistareyki býður upp á hagstæðar forsendur fyrir orkusækna hátækniframleiðslu þar sem aðgengi að endurnýjanlegri raforku og möguleikar á nýtingu varma frá jarðvarmaaflstöðinni, ásamt náttúrulegum aðstæðum til kælingar, geta stuðlað að hagkvæmum og skilvirkum rekstri.
Uppbyggingin verður í áföngum og er gert ráð fyrir að starfsemin geti til framtíðar skapað allt að 40 sérhæfð og varanleg störf á svæðinu. Framleiðslan verður að stærstum hluta ætluð til útflutnings.