Skrifað undir samning um stuðning Akureyrarbæjar við verkefni Ferðamálafélags Hríseyjar 2026-2029

Linda María Ásgeirsdóttir, formaður ferðamálafélags Hríseyjar, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjar…
Linda María Ásgeirsdóttir, formaður ferðamálafélags Hríseyjar, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, undirrituðu samninginn Mynd akureyri.is

Í dag var undirritaður nýr samningur um stuðning Akureyrarbæjar við verkefni á vegum Ferðamálafélags Hríseyjar til ársins 2029.

Markmið samningsins er að efla Hrísey sem ferðamannastað og eftirsóknarverðan áfangastað allt árið um kring í samvinnu atvinnu-, menningar- og markaðsteymis Akureyrarbæjar og Ferðamálafélags Hríseyjar. Til að ná þessu markmiði verða þekking, frumkvæði og kraftur heimamanna nýtt með fulltingi þeirrar þekkingar sem teymið býr yfir á sviði markaðssetningar og upplýsingagjafar.

Verkaskipting verður í grófum dráttum þannig að teymið annast markaðssetningu Hríseyjar sem áfangastaðar á landsvísu, en ferðamálafélagið sér um framkvæmd og þróun ferðaþjónustunnar í eyjunni.

Nýjast